Leita í fréttum mbl.is

Eggin og karfan.

Þegar við horfum til svæða sem byggja afkomu sína og atvinnu á næstum því einni atvinnugrein og sú grein verður fyrir áfalli þá kemur vel í ljós hversu nauðsynlegt það er að hafa fjölbreytni í atvinnu lífinu.  Þegar við skoðum Vestfirði þá sjáum við fljótt að svona er þetta þar og reyndar er ljóst að atvinnulíf í kjördæminu öllu mætti hafa mun víðar sterkari og víðtækari stoðir.  Þess vegna er mjög gott þegar upp koma hugmyndir um ný atfinnutækifæri og starfsemi. En ljóst er að í upphafi verður hið opinbera að koma með umtalsvert í púkkið og það verður að gerast mjög fljótlega.

Hugmyndirnar eru 1000 og nú er að koma þeim til framkvæmda.

Unidr forystu Jóhanns Ársælssonar var lögð fram þingsályktunartillag í þessu efni um það leyti sem framkvæmdir við Kárahnjúka voru að byrja. Nú er lika komin skýrsla Vestfjarðarnefndar og þar kennir margra ágætra grasa og ýmislegt annað hefur verið lagt til málanna sem vel athugandi er. Nú er bara að vinda sér í verkin.  Byggðakvóti er að mínu viti nauðsynlegur en grundvallar atriðið er að auka fjölbreytni atvinulífs.  Það er ekki gott að hafa öll eggin í sömu körfunni.

Stöndum saman

Kalli Matt

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Mér finnst umhugsunar- og í raun áhyggjuefni að hvorki varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar né ráðherra byggðamála Össur Skarphéðinsson svara í nokkru málefnalegum spurningum er varða stjórn fiskveiða sem er undirstöðu atvinnugrein byggðanna og stendur undir meira en helmingi af vöruútflutningi landsmanna. 

Ef til vill er þetta nýtt afbrigði af samræðustjórnmálum sem Samfylkingin hefur boðað samviskusamlega í stjórnarandstöðu.

Sigurjón Þórðarson, 29.6.2007 kl. 10:47

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég er fegin að sjá þig blogga aftur. Það er alveg ótrúlegt hvað mikið hefur gengið á í atvinnulífi Vestfirðinga, sumt sér ekki fyrir endann á en annað hefur ræsts vel úr eins og á Flateyri. En þótt erfitt sé fyrir marga í svona ástandi, þá er þetta samt lífið í hnotskurn. Hringir, þríhyrningar eða pýramídar, bara að passa að detta ekki inn í ferhyrninginn.

Edda Agnarsdóttir, 29.6.2007 kl. 10:52

3 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Enn og aftur vitna ég í skrif þín. "Byggðakvóti er að mínu viti nauðsynlegur" Tilvitnun líkur. Hvernig er hægt að tala svona? Þegar þetta er skrifað er 29 Júní. Hvernig stendur á því að það er ekki búið að úthluta byggðarkvótanum ennþá? Er það ekki staðreynd málsins að það var aldrei meining ykkar að þessi kvóti yrði veiddur? Hvernig er hægt að réttlæta svona vinnubrögð? Á hinum frjálsa vinnumarkaði væri búið að reka svona starfskrafta með skömm. Hvernig halda menn að þetta komi að einhverju gagni á þessu kvóta ári? Það er öllum ljóst að sá tími sem framundan er, er tími sumarfría og lokana frystihúsa. Sem þíðir bara eitt, það er vonlaust að veiða 
byggðarkvótann bæði 
vegna þess að tíminn er allt of skammur og lokanir vinnslustöðva.

Hallgrímur Guðmundsson, 29.6.2007 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband