Leita í fréttum mbl.is

Opinn markaður - frjáls samkeppni.

Það verður að segjast eins og er ég alveg kominn með upp í kok af umræðunni um framhjálöndun og öll þau meintu afbrot,  sem sumir menn eru svo vissir um að hafi verið framin. 

Ef þetta hefur verið faraldur - er þá ekki einfaldast að landa öllum fiski í gegnum markaði með strikamerktum körum svo öll tvímæli séu af tekin og saklausir menn hreinsaðir?

Þá myndi líka hlutverk fiskistofu breytast í fiskivigtunarstofu.  Best væri auðvitað að frjáls samkeppni ríkti á milli fiskvinnslufyrirtækjanna um veiddan afla en við skulum ekki ætlast til að það sé hægt svona fyrsta kastið. 

Hitt segir sig sjálft að sá gríðarlegi niðurskurður sem átt hefur sér stað hlýtur að kalla á það að fiskur fari ekki óunninn úr landi án þess að ÍSLENSK fiskvinnsla hafi fengið tækifæri að bjóða í hann.

Er ekki frjáls markaður ein af undirstöðum lýðræðisins?

Við viljum auðvitað stuðla að stöðugleika í greininni og ég tel að þessi mál verði að koma til skoðunar jafnframt því sem búið er að tala um auknar hafrannsóknir.

Stöndum saman

Kalli Matt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll, Karl klerkur !

Var, núna rétt áðan; að senda stallsystur þinni, í hinum menntamanna og listamanna flokkunm, Sædísi Ósk Harðardóttur, í Vinstri hreyfingunni - Grænu framboði, hér á Suðurlandi, þann tón; hvern þið eigið bæði skilin. Þið ættuð, fyrir hönd beggja ykkar flokka, að skammast ykkar fyrir, að fylgja möglunarlaust skálknum Einari Kr. Guðfinnssyni að málum; og það, með þeirri ömurlegu auðsveipni, hverri þið viðhafið.

Síðan hvenær, hefir þessi heimskulegi boðskapur Jóhanns frænda míns Sigurjónssonar, hjá Hafrannsóknastofnun átt að verða, að einhverjum trúarbrögðum ? Hvað þykist þið, Samfylkingarfólk; t.d., horfa langt fram á veginn, í fyrirsjáanlegri niðurníðzlu sjávarbyggðanna, fari fram sem horfir ?

Ert þú maður, Karl V. Matthíasson; til að svara þessum einföldu fyrirspurnum mínum ?

Með blendnum kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum

  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 00:57

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Óskar Helgi ég myndi nú ekki treysta á að Karl V svaraði þessum spurningum en hvorki hann né ráðherra byggðamála hafa séð ástæðu til að svara fyrirspurnum er varða veikan grundvöll niðurskurðarins.

Sigurjón Þórðarson, 9.7.2007 kl. 17:37

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

"Það verður að segjast eins og er ég alveg kominn með upp í kok af umræðunni um framhjáhöldum og öll þau meintu afbrot,  sem sumir menn eru svo vissir um að hafi verið framin." 

Svona las ég nú upphafið fyrst þegar ég opnaði fyrir stjórnborðið hjá mér og þegar ég las framhaldið að þá sprakk ég úr hlátri. Ekki minnkuðu hlátursgusyrnar eftir að ég sá þessi þráhyggjukomment hjá þér!

Svo var fyrsögnin náttúrlega alveg í stíl við það hvernig ég las þetta. Hahaha

Edda Agnarsdóttir, 9.7.2007 kl. 20:34

4 Smámynd: Karl V. Matthíasson

Sæll Óskar Helgi

Vertu ekki með of mikinn skæting við fólk þá nennir það ekki að svara þér.

Við í Samfylkingunni höfum horft á hrun byggðanna undanfarin ár og þetta hrun er ekki nýtt af nálinni  þú hlýtur að hafa tekið eftir því.

Það eru margir á þeirri skoðun að boðskapur Hafró sé kjaftæði. Eigum við þá bara að leggja Hafró niður og afskrifa allt sem þeir hafa verið að gera og leyfa öllum að veiða eins og þeim lystir?

Ég treysti mér ekki til að svara því játandi.

En hins vegar hef ég lagt áherslu á það bæði fyrr og síð eins og aðrir félagar mínir í Samfylkingunni að efla þurfi og víkka út stórlega allt rannsóknarstarf í sambandi við fiskistofna okkar og lífríki hafsins með aukinn aðkomu fleiri stofnana,  sjómanna og fiskifræðinga. Og um það hafa verið gefin fyrirheit  vonandi mun það gera okkur færari til að taka "réttari" ákvarðanir í framtíðinni.

Þegar maður les skrif einhverra á maður að lesa það allt. Ég lagði margt til í skrifi mínu sem komið gæti að haldi í byggðavörninni en ekki kommenterar þú neitt á það, (ættir þú að skammast þín fyir það?)

Vissuleg eru fiskveiðar og fiskvinnsla aðalatvinnuvegur sjávarbyggðanna,  en þú hlýtur að átta þig á því að hlutirnir breytast og ekkert er alltaf eins - þess vegna munu byggðirnar ekki rísa upp þó leyft verður að veiða og veiða. Það þarf miklu meira að koma til.

Endalaust er svo hægt að rífast um það hvað veiða átti.

220 eða meira  160 eða minna  140  eða 130.  Sjávarútvegsráðherrann hefur það ákvörðunarvald og ríkisstjórnin og þetta var niðurstaðan.  Við það verðum við að sætta okkur og vinna sem best út úr stöðunni eins og hún er núna.

Með bestu kveðjum

Kalli Matt

bestu kveðjur

Kalli Matt

Karl V. Matthíasson, 9.7.2007 kl. 23:43

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er sorglegt að formaður og varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar gerðu sig seka um að neituða að fá fund nefndarinnar virtan fræðimann sem hefur getið sér gott orð erlendis fyrir málefnaleg rök gegn núverandi ráðgjöf sem mun höggva djúp skörð í byggðir landsins.  Ráðgjöf Hafró byggir á reiknisfræðilegri fiskifræði sem hefur hvergi gengið eftir og er í andstöðu við viðtekna vistfræði.

Karl Matthíasson sá ekki ástæðu til þess að hlýða á rök hans frekar en að svara spurningum sem lagðar hafa verið hér fram sem varða forsendur ákvarðana stjórnvalda.

Í pistli sínum hér að ofan telur Karl að frjáls markaður sé ein af meginstoðum lýðræðisins en það er greinilegt að það virðist vera orðið tabú í herbúðum "jafnaðarmanna" að hlýða á andstæð rök og hvað þá að svara þeim málefnalega.

Sigurjón Þórðarson, 10.7.2007 kl. 00:41

6 identicon

Sælir, síra Karl og aðrir skrifarar !

Karl ! Ég einfaldlega vísa til þess, hversu áorkað hefir verið, eða... réttara sagt;; þetta fiskveiðistjórnunar kerfi er gjörsamlega ónýtt. 

Þið, í Samfylkingunni eruð, því miður brennd eiginleikum kamelljónsins; þ.e., skiptið litum eftir vindanna blæstri. Skætingur ? Jah..... eiga þessir ólánsmenn, Jóhann frændi minn Sigurjónsson og Einar Kr. Guðfinnsson að fá að leika, með eitt fjöreggja þjóðarinnar ? og það með mótstöðulausu samþykki ykkar; þingmanna stjórnarflokkanna ? Las allan bálk þinn, jú jú... strikamerkja körin, hugmynd þín ekki afleit, þarfnast skoðunar, alls ekki útiloka, að órannsökuðu.

Og enn og aftur, ágæti klerkur. Maður er nefndur Grímur Bjarni Markússon; vélfræðingur frá Borgareyrum, vel kunnandi til sjós og lands; hann gat þess,, í orðræðu niður í Höfn, í vor; þá við áttum spjall saman, sem oftar; að þorskurinn væri alþekkt flökkudýr, hvert lifði á 1 - 600 metra dýpis, og væri, að öðrum tegundum ólöstuðum duglegur að bjarga sér. Mætti; að ósekju veiða 300 þúsundir tonna, 2007/2008, að skaðlausu. 

Einnig nefndi Grímur, viðlíka svo mörgum öðrum; einhæfar rannsóknir Hafrannsóknastofnunar; þar mætti ýmsu betur fyrir koma innanhúss, að sinni hyggju, svo marktækara yrði.

Karl ! Þetta þarf ekki að verða nein niðurstaða, hvar þú nefnir í niðurlagi svars þíns. Hægt er enn, með samstilltu átaki, að koma vitinu fyrir þá Jóhann; og Einar Kr.

Þakka þér, að endingu svörin, þótt ég hyggði fyrr koma, þau sína þó; að enn finnst ærlegt fólk, og góðgjarnt innan  þessarrar lítt hugnanlegu Samfylkingar.

Og Sigurjón Þórðarson ! Þakka þér, ekki síður óbrigðulan kraft og snerpu, í sennu þessarri. Hygg þig meiri mann að, en ég ætlaði, sökum meintrar kerskni þinnar, á kosningaskrifstofu Frjálslynda flokksins, á Akureyri, í vor; í garð okkar bindindis manna. Er mér nú runnin reiðin. Þar erum við síra Karl; eftir því ég hefi bezt hlerað skoðanabræður, gagnvart áfengisbölvaldinum. Klerkur leiðréttir mig vafalaust, fari ég rangt með, í þeim efnum.

Með beztu kveðjum / Óskar Helgi Helgason    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 01:26

7 Smámynd: Karl V. Matthíasson

Sæll Óskar - á ný

Er edrú í dag góði vin og ætla að vera það uns ég leggst á koddann.

En annars sjónarmiðin eru mörg og nú bætir þú enn um betur með því að vitna í góðan sjómann og er það vel. Skoðun mín á fiskveiðistjórnarkerfinu er óbreytt og er ég þeirrar skoðunar að það verði að endurskoða með tilliti til byggða, hagkvæmni fyrr vinnslurnar og margt fleira. Auðvitað verður systemið að vera í stöðugri endurskoðun og má ekki vera hafið yfir gagnrýni annað hef ég aldrei sagt en ég visa svo til fyrri orða minna um tilurð ríkisstjórnarinnar. Klásúlan um sjávarútveginn í stjórnarsáttmálanum mætti í mínum huga vera afdráttarlausari.

ps. er nú í kjördæmi Sigurjóns í sumarfríi í heimsókn hjá foreldrum mínum læt þetta því duga að sinni.

kv.

Kallimatt

Karl V. Matthíasson, 10.7.2007 kl. 21:08

8 identicon

Heill og sæll, síra Karl !

Verð, að byrja á, að afsaka flumbruganginn, með stafsetninguna, í fyrra skrifi; á náttúrulega ekki að sjást; hjá, reyndar;; óvirkum félaga í Hinu íslenzka Bókmenntafjelagi (virknin bíður efri áranna, náist þau).    

Þakka þér, á köflum myndrænt og fyndið andsvar. Húmor er nú ekki algengur; í röðum fylkingar Ingibjargar Sólrúnar, frænku minnar; þó undantekningar finnist þó, sem betur fer.

Jú, jú..... víst fagna ég því, sé að draga saman, með sjónarmiðum okkar Sigurjóns; og þinna, væri hreint afbragð. Sýnist, sem þú viljir; miklu fremur, margra flokkssystkina þinna, sýna skilning á aðstæðum landsbyggðarinnar, eins og nú er komið málum, og er það vel.

Hefði ekki skemmt, hefðir þú tekið hús, á téðum Sigurjóni, og innt hann kaffisopans, a.m.k.

Njóttu dvalarinnar, með þínum ágætu foreldrum, og hafir þú, sem þau það; sem allra bezt. 

Með beztu kveðjum, norður yfir heiðar / Óskar Helgi Helgason     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 01:07

9 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Séra Karl. þú ert hér með klukkaður Leikurin leikur lausum hala í bloggheimum.

Edda Agnarsdóttir, 12.7.2007 kl. 00:54

10 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Á ekki að fara gera listann og klukka?

Edda Agnarsdóttir, 12.7.2007 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband