Leita í fréttum mbl.is

Vesturland og Vestfirðir.

Í gær vorum við þingmenn Norvesturkjördæmis á ferðinni í Borgarnesi og áttum fund með sveitarstjórnarmönnum Vesturlands. Það var mjög gott að eiga þennan fund og heyra, hvað hvert og eitt sveitarfélag er að leggja áherslu á.  Síðan heimsóttum við nýjan menntaskóla í Borgarnesi og þaðan lá leiðin í Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.

Í morgun flugum við vestur á firði.  Þar  skoðuðum fiskvinnsluna á Flateyri sem er nýkomin í gang. Þaðan fórum við í Orkubú Vestfjarða á Ísafirði og fengum þar góða kynningu. Svo fórum við á aðra kynningu í Háskólasetrið. Þá áttum við sams konar fund með sveitarstjórnarmönnum á Vestfjörðum og í Borgarnesi- (Vesturbyggð og Tálknafjörður voru með í gegnum fjarfundarbúnað - kom það vel út).  

Greinilegt er að við verðum að fylgja fyrirhuguðum byggðaaðgerum mjög vel eftir og bæta frekar í en hitt. 

Ég held að margir hafi ekki gert sér grein fyrir því, að staða byggðamála var orðin mjög alvarleg fyrir niðurskurð þorskveiðiheimildanna og því má spyrja:

"Var niðurskurðu þorskveiðiheimildanna til þess að vekja marga til meðvitundar um bága stöðu margra byggða og með þeim hætti jákvæð aðgerð?"

Fiskverð hefur reyndar farið hækkandi og er það vel -  vonandi hækkar það um 30% sem nemur niðurskurðinum. Og ef svo fer þá verður tjónið ekki eins mikið en ef til engrar verhækkunar kæmi.

Að lokum áttum við góðan fund með hestamönnum  en þeir missa aðstöðu sína vegna þess að hún fer undir veg sem liggur frá nýjum jarðgöngum.

Á föstudaginn munum við svo eiga fundi á Norðulandi Vestra.

Berjumst fyrir bættri byggð og stöndum saman.

Kalli Matt

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Helgadóttir

já nokkuð til í því að ógnanir geti líka verið tækifæri, hlakka til að sjá pistil um ferð á norðurland vestra

Guðrún Helgadóttir, 25.10.2007 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband