Leita í fréttum mbl.is

Ég sakna Dags

Ég vil hvetja vini mína í minnihlutanum í höfuðborg okkar Íslendinga til að sýna ekki sömu vanstillingu og heiftarreiði sem við urðum vitni að hjá fyrrverandi minnihluta þegar síðasti meirhluti var myndaður.

Vil segja það að mér fannst Dagur vera frábær borgarstjori, fara vaxandi og lofa mjög góðu. Ég er viss um að Dagur á góða pólitíska framtíð fyrir höndum.

stöndum saman

Kalli Matt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Agða Hallgrímsdóttir

Fyrrverandi, núverndi og verðandi minnihluti eða meirahluti.....Þetta er nú meiri sinfonían. En ég er algjörlega sammála þér með hann Dag. Hann var/er efnilegur borgarstjóri og það er eftirsjá eftir honum. Hvað borgarbúa? hafa þeir ekkert að segja í öllu þessu stjórnleysi hjá borginni. Ég held að við ættum bara að taka yfir stýra skútunni á meðan þessi sandkassaleikur stendur yfir :)

Guðrún Agða Hallgrímsdóttir, 22.1.2008 kl. 00:41

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Verst er að það skuli ekki vera hægt, eða mega ekki kjósa!

Edda Agnarsdóttir, 27.1.2008 kl. 16:28

3 Smámynd: Vigfús Davíðsson

Ég sakna Karls V Matt. Ég táraðist þegar ég las greinina Róðurinn.Ég er trillukall og er að bíða eftir að ríkisstjórninn fari að gera eitthvað að viti í sjávarútvegsmálum. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna, sem hefur aðsetur í Genf,úrskurðaði fyrir nokkru að íslenskum stjórnvöldum beri að endurskoða fiskveiðistjórnunarkerfið. Ert þú ekki varaforðmaður sjávarútvegsnefndar. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar stendur.Tryggja skal stöðuleika í sjávarútvegi.Gerð verður sérstök athugun á reynslunni af aflamarkskerfinu við stjórn fiskveiða og áhrifum þess á þróun byggða.Ég biðst afsökunnar að hafa farið hérna inn, en athugasendum inn á greinina um róðurinn var lokuð.Ég er félagi í samfylkingunni. Þess vegna skrifa ég hér.

Vigfús Davíðsson, 3.2.2008 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband