Leita í fréttum mbl.is

Fundur á Ísafirði.

Ég var með fund í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Samfylkingarinnar. Þar kom fram sú eindregna skoðun að endurskoða þurfi lög um stjórn fiskveiða. Eg hef það á tilfinningunni að umræðan um kvótakerfið og eignarhaldið á aulindinni verði meiri og meiri ekki síst í ljósi krepppukomunnar. Það er gott að Samfylkingin hefur góðan grunn til að standa á í þeim málum. Sýnin um sameign þjóðarinnar á auðlindum lands og sjávar mun fá byr undir báða vængi á komandi vikum og mánuðum. Því er nauðsynlegt fyrir okkur að hugsa vel og íhugu um þessi mál.   Þá fannst mér ánægjulegt hversu menn horfa með jákvæðum augum til kræklingaræktar og þorskeldis.  Á fundinum var líka rætt um þann hrikalega rekstarkostnað sem kúabændur hér vestra standa frammi fyrir. Vextir, flutningskostnaður, fóðurverð og  og rafmagns er svo hár að það hriktir hér í stoðum þessarar greinar og reyndar víðar. Hér er verk að vinna sem vonandi gengur að leysa sem allra fyrst. 

Á morgun verður súpufundur Samfylkingarinnar í Edinborgarhúsinu kl. 11.00

Stöndum saman

Kalli Matt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtilegt!

Þegar skipið er að sökkva heldur Samfylkingin fund um hvernig skipta eigi aflanum og þingmaðurinn er mjög ánægður!     

Hræsnaralið - vonandi smakkast spillingarsúpan eftir ástæðum!

Ragnar

Ragnar Eiríksson (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 13:14

2 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Ég held að nú mætti fara að andmæla Sjálfstæðisflokknum og reyna að koma skikk á stjórn landsins, þar með talinn sjáfarútveginn og kvótanum.  En getur þú Karl Mattíasson sagt mér eitt, hversu lengi koma Íslendingar til með að eiga kvótann áfram??  Hversu lengi, fáum við Íslendingar að eiga okkar ástkæra, ylhýra land? Hversu lengi þurfum við að bíða eftir því að heyra frá stjórn þessa lands hvað á að gera og hvað sé verið að gera??

Þetta eru spurningar sem mörg okkar eru að spyrja okkur í dag.  Hversu margir þurfa að flýja land áður en eitthvað er gert til að sporna við því að fyrirtæki fari á hausinn og þurfi að segja upp fólki? Fyrirtækjaeigiendur og starfsmenn þeirra eru á nálum, þarf að segja upp fólki? Hversu mörgum? Er hægt að halda rekstri áfram?

Afhverju komið þið ekki út úr skelinni og segið okkur hvað er að gerast og að hverju er stefnt??

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 8.11.2008 kl. 18:49

3 Smámynd: Karl V. Matthíasson

Svar til Ragnars.

Sæll Ragnar Eiríksson. Takk fyrir athugasemdina en vil segja þetta.

Ég er búinn að halda þó nokkra fundi um þessi mál. Til dæmis mjög stóra raðstefnu á Grand Hóteli í Reykjvík þar sem hátt á annað hundrað manns mættu. Frummælendur voru. Lúðvík Kaaber, Aðalheiður Ámundadóttir, Jóhann Ársælsson og Þorvaldur Gylfason. Þá hefur sjávarútvegsnefnd samfylkingarinnar sent frá sér ályktun um þessi mál. Undirtektir hefði að sjálfsögðu mátt vera öflugri og meiri.

bestu kveðjur

Kalli Matt

Karl V. Matthíasson, 10.11.2008 kl. 07:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband