Leita í fréttum mbl.is

Stutt ræða og vonandi auðskilin.

Eftirfarandi ræðu flutti ég á Alþingi í fyrstu umræðu um frumvarp til laga um gjaldeyrismál:

Herra forseti .Þetta frumvarp sem hæstvirtur viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson leggur hér fram er til þess að tryggja að þau gjaldeyrisverðmæti sem verkafólk íslands og sjómenn íslands og margir aðrir skapa, skili sér vel og greiðlega inn í landið og ég tel það vera mjög verðugt að Alþingi íslendinga stuðli vel að því.

Stönum saman.

Kalli Matt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hagbarður

Það væri óskandi að veröldin væri svona einföld! Hún er það bara ekki, því miður! Ég er heldur ekki svo viss um það að flest hver ykkar hafið skilið hvað þið voruð að samþykkja. Það hefði verið þjóðinni og fyrirtækjunum betra að aftengja vísitöluna tímabundið og leyfa genginu að falla á meðan verið er að svæla út krónubréfin sem við verðum að greiða. Þessi lög dýpka og lengja kreppuna.

Hagbarður, 28.11.2008 kl. 16:25

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Bíddu !

Og hvað þá með alla þá sem ekki mega skapa gjaldeyrir vegna þess að þið þorið ekki fyrir ykkar litla líf að hreyfa við kvótakerfinu til að hleypa fleirum að ?

Eigum við þá bara að bíða áfram á skíta bótum ?

Níels A. Ársælsson., 30.11.2008 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband