Leita í fréttum mbl.is

Unga fólkið okkar, forvarnir og Egilshöllin

Flestir fréttatímar segja okkur meira og minna af efnahag., peningum, fjármálum og gjaldþrotum.  Og hvar sem fólk kemur saman mótast umræðan af þessum fréttum. Á meðan vill margt annað gleymast.

Ég tel  að við ættum að gefa æskufólki okkar meiri gaum huga betur að því og efla allt forvarnarstarf einkum á sviði áfengis og fíknimála. Og byggja það fólk upp sem lent hefur í klóm áfengis og fíkniefna. 

Hér gegna skólar miklu hlutverki, íþróttafélög,  þjóðkirkjan og  meðferðarstöðvar eins og til dæmis Hlaðgerðarkot og sú blessaða starfsemi sem er á vegum Samhjálpar, SÁÁ, Krýsuvíkursamtakanna Teigs og Ekron og einnig vil ég minna á nauðsyn uppbyggingar þeirra manna sem nú dvelja í fangelsum landsins.

Í kreppunni gleymist þetta oft og þá er meiri hætta á því að við sjáum unga fólkið okkar stíga inni í myrkraheim fíknanna.

Við sjáum í landi okkar margar byggingar hálfreistar og frá þeim heyrast engin hamarshögg lengur.

Mikið er nú talað um að klára tónlistarhúsið mikla. Ég tel að það megi bíða en í stað þess skulum við  ljúka hið snarasta við Egilshöllina, þar er þó mikil starfsemi og sjö til átta hundruð börn koma þangað á hverjum degi til hollrar íþróttaiðkunar.

Umhverfi þess mikla íþróttamannvirkis er beinlínis hættulegt og milda má kalla að engin meiriháttar slys hafi orðið þar á börnum.  Svo stórt hverfi sem þar er má alls bíða lengur eftir því að verk þetta klárist, enda hefur það sinn tilgang í forvarnarstarfi fyrir fjöldann barna, ungmenn og líka fullorðinna.

stöndum saman

Kalli Matt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Karl og þakka þér fyrir ræðu þína í gærkveldi.

Ég er þér hjartanlega sammála um að hlúa þarf betur að framtíð þjóðarinnar, en það er einmitt unga fólkið og þar sem þú komst að tónlistarhúsinu tek ég undir hvert orð þar að lútandi.  Tónlistarhúsið má og öllu heldur á að bíða.  Forgangsröðun verkefna er röng þegar að þessu tvennu kemur þ.e. tónlistarhús annars vegar og unga fólkið og forvarnir hins vegar.

Bestu kveðjur,

Tómas Ibsen Halldórsson, 8.4.2009 kl. 10:44

2 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Þetta er alveg rétt hjá þér Kalli, það þarf að muna eftir börnunum. En þar sem verið er að drífa sig að klára "mikilvægustu" byggingu landsins, mætti þá ekki nýta hana til að hafa ofan af fyrir börnunum líka??

Það er svo margt sem hægt er að láta þau gera og svo margt sem þetta hús getur boðið upp á fyrir yngri kynnslóðina. Hugmyndir væru þá t.d. leikslistarnámskeið í boði Reykjavíkurborgar, söng og tónlistarnámskeið, matreiðslunámskeið, tungumálanámskeið og lengi mætti telja.

Hægt væri að líta til hugmynda Huxskólans á Eyrabakka og eins í Íþrótta og tómstundafélaga í borginni.  Ég held að það sé vel hægt að gera margt fyrir börnin okkar í þessu húsi og það á ekki að segja að þetta hús sé ekki fyrir barnastarf.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 8.4.2009 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband