Leita í fréttum mbl.is

Verkalýðsdagurinn.

Verkalýðsdagurinn er haldinn í skugga.  Það er ljóst að fjöldi manna er atvinnulaus og á ekki fyrir afbogunum af lánum. Þetta á líka við um stóran hóp manna sem hefur vinnu og laun þeirra  hafa lækkað.  Varla sér fyrir endann á vaxtaorkinu sem ríkið stendur hér fyrir með verðtyggingarþjökun að auki.

Ég hef ekki verið mikill Evrópusinni en stækkunarstjórinn dró algerlega úr áhuga mínum fyrir inngöngu í sambandiði þegar hann tjáði að við ættum ekki að fá neina "sérmeðferð" vegna stöu okkar í sjávarútvegi. Ef Ísland gengi í Evrópusambandið núna þá er ljóst að ekkert gæti bannað erlendri útgerð að kaupa íslenska útgerð og um leið þann veiðrétt sem íslenska útgerðin hefur. Sá frómi og ágæti maður Jóhann Árslælsson hefur benti á þetta og varar við því að Ísland gæti orði í sömu stöðu og sum íslensk kvótlaus þorp eru nú í.  Svo vakna aðrar spurningar hver yrði staða okkar  gagnvart ESB í tengslum við hugsanlega olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Þessi hugsun um ESB kom upp í hugann þegar Gylfi Arnbjörnsson alþýðuleiðtogi talaði um það sem brýnasta mál alþýðunnar á Íslandi að ganga í ESB þá yrði allt betra.

Í atvinnuleysi og tekjumissi verður strax að byggja upp atvinnulífið endurreisa það annars verður engin velferð áfram. Frjálslyndir bentu á það ítrekað í kosningabaráttunni. Þeir sem sjá Evrópusambandið sem lokalausnina verða að átta sig á þvi að við höfum engan tíma til að bíða eftir því að Vg sem stofnað var m.a. sem baráttuafl gegn ESB finni siðfeðilega réttlætanlega leið til að hverfa algerlega frá þessu grundvallar stefi sínu.  

Ég vonaði að Jóhanna og Steingrímur myndu tilkynna um nýja ríkisstjórn á þessum degi, baráttudegi verkalýðsins, en "barátta" þeirra tekur því miður lengri tíma en ætlað var.  

Vonandi kemur hér ríkissstjórn sem verður jarðtengd, stjórn sem gerir sér grein fyrir því að velferð verður ekki til án atvinnu og því er það grundvallaratriði að koma atvinnulausum í vinnu og það strax. Vonandi tala þau Jóhanna og Steingrímur um það líka. 

Stöndum saman

Kalli Matt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú gegst úr flokki sem hafði ESB nr. 1 í flokk sem var algjörlega á móti ESB. Hvernig er það hægt?

Valsól (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 22:35

2 identicon

Hann segir í greininni af hverju hann gerði það.

Einar Guðjónsson (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 23:18

3 Smámynd: Karl V. Matthíasson

Sæl Valsól.

Í fyrsta lagi sagði ég:

 "Ég hef ekki verið mikill Evrópusinni..."

í öru lagi þá er til fólk í Samfylkingunni sem er á frekar á móti ESB aðild. 

Svo er líka til fólk sem er í  Sjálfstæðisflokknum sem mjög hlynt ESB aðild og einnig fólk sem er algerlega á móti ESB.

Nú skilst mér að í Vg sé kominn upp öflugur hópur sem vill ganga í ESB og í Frjálsynda flokknum er til fólk sem er opið fyrir því að sækja um aðild að  ESB.

Lífið er ekki bara svart og hvítt - ekki heldur í pólitík, kæra Valsól. Það er til dæmis  til fólk í Vg og Samfylkingunni sem ekki vill miklar breytingar á kvótakerfinu. En takk fyir athugasemdina.

Kalli Matt

Karl V. Matthíasson, 2.5.2009 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband