Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Áttu fisk? - áttu vatn? - áttu land?

Framsóknarmenn settu það á kosningastefnuskrá sína fyirr fjórum árum að setja ætti í stjórnarskrá að fiskimiðin ættu að vera þjóðareigu. (nú hljóðar 1.gr laga um fiskveiðar upp á það) 

Nú lítur út fyrir að þeim takist það ekki, enda líklega lítill áhugi fyrir því í reynd, ef draga má ályktanir af frumvarpsflutningi þeirra og samþykkta á þingi um að vatn vors lands skuli í einkaeigu.

Og nú les maður á  textavarpinu að þjóðlendurnar  (sem búið er að ná af mörgum bændum með harðvítugum málferlum og aðförum) skuli fara undir Landsvirkjun sem síðar er ætlunin að selja hæstbjóðanda eða aðlabjóðanda. Þá verða þær ekki lengur þjóðlendur.  Trúði því einhver í alvörunni að það stæði til?

Nú er búið að selja/gefa bankana, símann og margt margt fleira, er við áttum sem þjóð og samfélag. Auðlindir landsins eru að hverfa úr höndum þjóðarinnar fyrir verk Sjálfstæðisframsóknarflokks. Hið heilaga takmark frjálshyggjunnar er auðvitað líka að selja sjúkrahúsin og skólana. Kannske tekst Sjálfstæðisflokknum það með hjálp Framsóknar á næsta kjörtímabili ef þeir fá.

Eitt af þvi sem einkennir kúgunarríki er að auðlindir þess eru í fárra höndum og menntun mjög dýr.

 Látum ekki Sjálfstæðisframsóknarflokkinn slátara síðustu búkollunni -- látum þau syngja er vorar:

 "Ég fer í fríið - ég fer í fríið"

Samfylkingin berst fyrir jafnrétti og jöfnum tækifærum allra -- ekki bara sumra vina og vandamanna.

Stöndum þétt saman. 

X-S (Success)

Kalli Matt

 

 


Eigi skal æpa upp -- heldur safna liði.

Það var alveg ótrúlegt að hlusta á Jón Baldvin æpa í gjálfri Egils og tala um enn einn nýjan flokk.

Ef öll sú orka sem hann notaði í þennan æsing færi í það að hvetja fólk til að standa fast á bak við Ingibjörgu og Samfylkingunni myndi fylgið aukast.  Þetta ættum við öll í Samfylkingunn að íhuga vel, þegar við leggjum út á völl kosningabaráttunnar.  Við kusum Ingibjörgu og við skulum leggja allt sem við getum í það að standa trygg og taust að baki henni sem hún algerlega verðskuldar og Samfylkingunni okkar. 

Minnumst hinnar glæsilegu ræðu sem Össur flutti þegar Ingibjörg tók við af honum og hann hvatti okkur öll til að eflast og halda ótrauð áfram við það að stækka flokkinn og gera hann að öflugu forystuafli í íslenskum stjórnmálum og fylkjast um Ingibjörgu.  Látum okkur ekki detta það í hug að eitthvað sé of seint. Koningabaráttan er varla hafin -  óttumst eigi.    Fram Sam-fylking. 

X-S (Success)

 Kalli Matt


Messa skemmir ekki fyrir.

Jæja, þá er helgin að ganga í garð.  Ég vona að hún verði okkur öllum góð.  Og ég vona að engin(n) geri eitthvað sem hann/hún sjái eftir.  Það er nefnilega svo leiðinlegt að heyra fréttir af alls kyns vandræðum í kjölfar "helgargleðinnar" 

Stundum finnst mér eins og fólk sé ekki að fatta að alkahólið er í rauninni undirrót margra vandræða og hegðunar sem er algerlega út í hött. 

Þegar ég hætti að drekka þá varð miklu minna um það að ég lenti í vandræðum (spyrjið bara konuna) og dagarnir urðu einhvern veginn gleðilegri á allan hátt.

Ef þú hefur hugsað þér að vera edrú um helgina en vaknar allt í einu þunnur/þunn á mánudaginn og kannski með móral eða að eitthvað hefur skeð sem átti alls ekki ske. Þá væri ekki vitlaust að velta því fyrir sér í alvöru hvort tími hinna stóru breytinga sé ekki runninn upp.

Ég stend með þér.

Já, hvað sem gerist þá er ósk mín sú að þú eigir góða og innihaldsríka hegli. 

Messa á sunnudaginn skemmir örugglega ekki fyrir.

 

Kalli Matt


Góð áhrif

Nú er dagur að kveldi kominn og ég sé að bloggið mitt hefur strax áhrif,  því ég er viss um að Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins hefur lesið það sem ég sendi í loftið í morgun. Hann talar um að takmarka með lögum álagið, sem bankar hér á landi  leggi á fólk.  (Kannski ættum við að kalla það álögin) Þetta minnir á orð Valgerðar fyrir fjórum árum - líka svona stuttu fyrir kosningar að það gengi ekki upp að bankarnir hefðu bæði belti og axlabönd.

Og Guðni er farin að sjá að þjóðlendulögin eru líklega þjóflendulög. 

Sofnum samt í friði og megi allir þeir sem vaka yfir velferð annarra í nótt eiga góða vakt.

Kalli Matt


Tilhlökkun

Ég var að lesa féttir um hækkun matvara. Svona er nú það - vörurnar hækka og við þessir kjánar sem skuldum í íbúðunum okkar og höfum verið að sjá lánin hækka og hækka fáum nú einn gúmoreninn enn. -- Við höfðum nefnilega hlakkað til að upplifa lækkun á höfuðstólum lána okkar þar sem ríkisstjórnin (í aðdraganada kosninga) lækkar skatta og tolla á matvöru. En þá kom þetta. Og höfuðstólinn mun ekki lækka - verðbótaþátturinn vinnur áfram sitt verk.  Lánnin hækka bara og hækka og vextirnir hækka og hækka.

En launin eru þau að hækka eins mikið eða örorkubæturnar eða ellilífeyririnn? 

Þök heimila, þeirra sem skulda,  eru orðin flugvöllur "hinnar mjúku lendingar" sem talað er um vegna ofhitnunar í hagkerfinu.  

En annars við skulum samt eiga góðan dag -- því við getum hlakkað til kosninganna í vor.

 X - S   (SUCCESS)

Kalli Matt 


Kallinn á ferð og flugi

Núna er ég á ferð og flugi um kjördæmið. Í kvöld verð ég á Kaffi Krók kl. 20 ásamt; Ingibjörgu Sólrúnu, Guðbjarti Hannessyni og Önnu Kristínu Gunnarsdóttir. Allir verða að mæta.

 

Guð verði með ykkur ;)


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband