Leita í fréttum mbl.is

Vinir Guðríðarkirkju

Kæru vinir í Grafarholtsprestakalli

Guðríðarkirkja er sóknarkirkja íbúanna í Grafarholti, Úlfarsárdal og Reynisvatnsási. Þau sem eru í Þjóðkirkjunni eiga Guðríðarkirkju og standa undir rekstri hennar. Þau greiða með sóknargjöldum sínum viðhald byggingarinnar, laun kirkjuvarðar, organista, æskulýðsprests og barnakórstjórans. Margt annað er greitt með sóknargjöldunum eins og til dæmis í líknarsjóð kirkjunnar sem hefur eftir föngum stutt við efnaminna fólk með Bónuskortum. 

Nú sjáum við sem erum í Þjóðkirkjunni ágengar auglýsingar og harðar hvatningar um að við sem erum í Þjóðkirkjunni yfirgefum hana.

Ég hvet ykkur öll til að styðja við starf kirkjunnar í hverfinu ykkar og allt það sem hún hefur upp á að bjóða.  Þess vegna er það mjög mikilvægt að sem flestir er búa í prestakallinu séu skráðir í Þjóðkirkjuna.

Kirkjan hefur það hlutverk að boða orð Guðs, um eilíft líf og að við sýnum hvert öðru kærleika og fyrirgefningu meðan við lifum hér.

Ef þú ert ekki í Þjóðkirkjunni og vilt styðja við starf Guðríðarkirkju hvet ég þig til að ganga í Þjóðkirkjuna.

Guð blessi þig.

Karl V. Matthíasson, sóknarprestu Grafarholtsprestakalls


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband