Leita í fréttum mbl.is

Byggðasamningar við einstaklinga

Eitt af þvi sem ríkið gæti gert til þess að koma ungu fólki í húsnæðisvandræðum út úr þeim væri að kaupa upp fullt af húsnæði úti á landi og leigja því svo húnæðið. Gera "einstaklings byggðasamnina" gegn ákveðnum fríðindum og sjá svo um að þetta fólk fengi vinnu. Hér er ég að tala um störf án staðsetningar.  En um það er sérstakt ákvæði í ríkisstjórnarsáttmálanum.

Ég veit að það er til fullt af ungu fólki sem vill gjarnan byrja búskap sinn á því að að eiga heima úti á landi jafnvel þó það hafi alist upp í  þéttbýlinu. Því miður hefur orðið hrun á sumum stöðum landsbyggðarinnar, en ef atvinnutækifærin verða fleiri og samgöngurnar betri og háhraðatengingar í lagi þá er nokkuð ljóst að margir nýttu sér þau tækifæri. Það hafa dæmin sannað.  Miklar vonir eru bundbar við fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að auka jöfnuð á milli landshluta.

Stöndum saman

 Kalli Matt 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Mér líst afar vel á þessa hugmynd hjá þér.  Ég er sjálfur utan af landi og bý úti á landi. 

Ég veit um margt ungt fólk sem vill gjarnan búa úti á landi, en það að fá  atvinnu er það erfiðasta við það.

Hér á Seyðisfirði hafa verið uppi tilburðir við að byggja upp störf tengdum ferðamálum og menningarstarfsemi.  Það hefur nokkuð áunnist og við sjáum að ýmislegt er hægt að gera. 

Við höfum líka séð verkefni flutt til sýslumannsembætta og störf tengdum vinnumálastofnun og fleiru þess háttar og þetta eru skref í rétta átt.

Á Norðurlöndunum eru margir lýðháskólar og þeir eru langflestir í tiltölulega litlum bæjum úti á landi. Kannski má gera eitthvað slíkt hér á landi?

Störf fyrir hið opinbera, svo sem þjóðskrá og Ríkisskattstjóra má hugsanlega staðsetja úti á landsbyggðinni. Einkafyrirtæki hafa gert þetta nokkuð, til dæmis Kaupþing.

En ég bíð enn eftir auglýsingu á störfum án staðsetningar. Þetta er spennandi mál. 

Jón Halldór Guðmundsson, 21.11.2007 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband