Leita í fréttum mbl.is

Auðlindirnar og Evrópusambandið

 Sé það rétt, að innganga Íslendinga í Evrópusambandið verði til þess að við missum forræðið yfir auðlindum okkar (eins og haldið er fram í Reykjavíkurbréfi í dag) þá er ljóst að við höfum ekkert þangað að gera.

Í tengslum við þetta vaknar spurningin: Hver á að hafa forræði yfir auðlindum Íslands? Hver á að hafa yfiráðaréttinn yfir auðlindum okkar? Heita vatninu í iðrum jarðar, kalda vatninu sem sprettur úr berginu, fallvötnum sem gefa rafmagn eða miklar ferðamannatekjur? fiskimiðunum í sjónum og hugsanlegum olíulindum innan landhelgi okkar? Hverju svarar Morgunblaðið (með sína svínslegu staksteina í gær) því. Er það þjóðin? Eru það sveitarfélögin? Eru það samvinnufélög? Eru það bankarnir? Eru það verslunarkeðjurnar? Eru það verkalýðsfélögin? Eru það verktakafyrirtækin? Eru það einstaka milljónungar?

Hvernig á að deila út gæðum landsins? Þetta er spurning sem brennur nú mjög á okkur? Það er að sjálfsögðu fáránlegt ef auðlindir þjóðarainnar fara úr höndum hennar í hendur örfárra Mammonsdýrkenda, sem vaða yfir lönd og lendur með skeytingarleysi og yfirgangi. Ef þjóðin sjálf hefur ekki forræðið yfir auðlindum lands síns og SJÁVAR þá er hún varla þjóð.

Ég hvet alla Íslendinga til að hugsa um þessi mál, enn höfum við eitthvað að segja um auðlindir lands og SJÁVAR. Lifi mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna:

Stöndum saman.

 Kalli Matt 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Já Kalli, eins og forysta Sjálfstæðisflokksins segir ;

"Lengi lifi Mannréttindanefnd LÍÚ"

Níels A. Ársælsson., 27.4.2008 kl. 12:58

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Því miður er þessi mannréttindanefnd hreint grín, Kalli. 12 fulltrúar hennar, þeir eru með próf í mannréttindafræðum skildist mér á henni  Aðalheiði, nema við Háskólann á Akureyri, finna það út að það sé mannréttindabrot að ég skuli þurfa að kaupa mér veiðirétt sem útgerðarmaður ef ég á t.d. 3000 tonna loðnu eða kolmunnaskip vegna þess að ég hafi verið starfandi á loðnuskipi. Meirihluti þessara 12 ríkja fara sjálf ekkert eftir Alþjóðalögum um mannréttindi og kvenfrelsi.Það væri skömm fyrir þjóðina að fara eftir ályti þessara ríkja um mannréttindi.

Sigurgeir Jónsson, 29.4.2008 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband