Leita í fréttum mbl.is

Dagurinn í dag. (gær).

Dagurinn í dag (gær) verður mér mjög minnisstæður. Vantrauststillaga stjórnarandstöðunnar var felld.

Ég er á þeirri skoðun að ríkisstjórnin verði að vinna úr þeim vanda og verkefnum sem við stöndum frammi fyrir og að við verðum að komast á lygnari sæ áður en farið verður út í kosningar.

Það verður líka að taka tillit til hugsanlegra nýrra stjórnmálaafla sem hyggja á framboð þau verða að fá sinn tíma til að verða til og móta stefnu sína.

Ég er líka á þeirri skoðun að nefndin sem á að rannsaka kostgæfilega hvað gerðist verði að sjá dagsins ljós sem fyrst.  Ég er búinn að bíða spenntur eftir að hún verði til og hefji störf, því ég fæ spurningar á hverjum degi hvað þessu máli líði eiginlega.

Þeir sem eru að vinna að því að koma nefndinni á laggirnar eru Geir, Ingibjörg, Steingrímur, Valgerður og Guðjón Arnar. Hvað dvelur Orminn langa?

Ég var á fundinum í Háskólabíói og mér fannst gott að vera þar og heyra það sem kom þar fram. Ég er á sömu skoðun og Þorvaldur Gylfason um að upphaf vandræðanna megi rekja til þeirra daga þegar við gátum farið út í þann "bissness" að veðsetja lífverur sem ekki voru orðnar til.  

Orð hans voru mjög í anda þess sem hann sagði á ráðstefnu sem sjávarútvegsnefnd Samfylkingarinnar stóð fyrir á Grand Hóteli í vor og fjallaði um úrskurð mannréttindanefndar SÞ. Þar var fullur salur af fólki og þó fjölmiðlar fengju að vita af því var nánst ekkert um þetta fjallað.

Mín skoðun er sú að auðlindamálin fái á næstu vikum miklu meiri umræðu en verið hefur.  Vonandi verður það til þess að menn fái auðveldari aðgang að þeirri auðlind okkar sem hefur reynst þorra Íslendinga lifibrauð. 

Nú læt ég staðar numið vil þó segja ég mæti mörgu reiðu og vonsviknu fólki  og það er erfitt.  Sjálfur sé ég lánin mín hækka og hækka og þá verð ég líka reiður. Reyni samt að láta reiðina ekki stjórna mér út í eitt því ég veit að þá get ég ekkert.  Reiðin lamar mann og þannig vil ég ekki vera.  Við megum vera reið en hugsum líka um hvaða möguleikar eru fyrir okkur, sem búum hér á "landinu kalda" Við getum unnið okkur út úr þessum erfiðleikum ef við stöndum saman og meinum það virkilega þegar við segjumst vilja endumeta lífsgildin og hvað það er sem raunverulega skiptir máli.

Já stöndum saman

Kalli Matt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Standa saman um hvað, Kalli? Seðlabankastjórn situr enn í boði Samfylkingarinnar, sömu menn eru í fjármálaeftirlitinu í boði Samfylkingarinnar (viðskiptaráðherra getur auðvitað rekið stjórn FME og forstjórann, en varla er við því að búast því þetta er jú sami bankamálaráðherrann sem formaður Samfylkingarinnar treysti ekki til að vita af leynifundi með Seðlabankastjóra), sömu menn eru enn að stjórna bönkunum og virðast stunda það að koma sér og sínum undan skuldum, allt í boði Samfylkingarinnar, mannorð íslendinga í molum um heimsbyggðina þar sem menn vita ekki hvort menn eigi að hlæja eða gráta yfir þeim sem eru við stjórnvölin á Íslandi. Allt gerist þetta í boði Samfylkingarinnar. Er ekki komið nóg Kalli, ég var tilbúinn að gefa ykkur tíma í upphafi en síðan hefur hver vitleysan rekið aðra. Hesturinn er í miðri á, en hann er dauður og því ekkert eftir en að skipta um hest.

Guðmundur Auðunsson, 25.11.2008 kl. 14:57

2 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Sæll Karl.Það væri stórslys að fara að setja á kosningar í vor og setja allt í uppnám,það veður að klára þetta mál í heild sinni ráðamenn verða að fá frið til að vinna það skiptir ekki máli hvort seðlabankastjóri sitji mánuði í viðbót eða ekki.Gefum ráðamönnum eitt ár til að vina okkur vel fram á veginn.

Guðjón H Finnbogason, 25.11.2008 kl. 21:24

3 Smámynd: Sigurður Jón Hreinsson

Karl, það er ekki hægt að ætlast til að þjóðin þjappi sér að baki stjórnar sem ber ábyrgð á gjaldþroti landsins.  Einstaklingar með réttarstöðu grunaðra njóta ekki traust á vettvangi stórslysa.  Hvergi í réttarríkjum er slíkum einstaklingum treyst til að hafa áhrif eða stjórna rannsókn á orsökum slysins.  Svo einfallt er það.

Og Guðjón, halló.  Stórslysið var um daginn.  Það er allt í uppnámi og þeir sem stjórna bera ábyrgð á því.  Því sama fólki er ekki treystandi til að klára málin.  Brennuvörgum er ekki treystandi í slökkvistörf.

Er skömmin svo sterk að bera ábyrgð á gjaldþroti þjóðarinnar, að þau geta ekki vikið ?  Það skildi þá aldrei vera...

Sigurður Jón Hreinsson, 26.11.2008 kl. 00:07

4 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Sæll.

Stöndum saman segi ég með þér.

Ég vil kasta því hér með fram að kannski myndu fleiri standa saman um að vinna á vandanum ef mynduð yrði þjóðstjórn til starfa næstu mánuðina, segjum 18 mánuðina, en að þéim tíma liðnum yrðu boðað til kosninga.

Jón Halldór Guðmundsson, 27.11.2008 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband