Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Smá pæling í kjölfar kosninganna.

Eftir hrunið lagði Samfylkingin mikla áherslu á persónukjör og aukna þátttöku og aðkomu almennings að ákvarðanatöku í samfélaginu og er það í samræmi við stefnu hennar.  

Þegar ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs tók við eftir fall ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks var mikil umræða um lýðræðismálin og frumvörp um breytingu á stjórnarskrá og kosningalöggjöf sem fólu í sér aukið lýðræði lögð fram. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn fóru auðvitað í málþóf  og hvorki gekk né rak.

Svo var kosið og Vinstrhreyfingin grænt framboð  og Samfylkingin þurrkuðu Frjálslynda flokkinn í Norðvestur kjördæmi út með stórkostlegum yfirlýsingum í sjávarútvegsmálunum  og loforð voru líka gefin um aukið lýðræði. 

Og þjóðin treysti loforðunum og kaus Samfylkinguna og Vinstrihreyfinguna grænt framboð til að koma á umbótum.

En auðvitað er mikið að gera hjá ríkisstjórn í landi sem hefur verið rænt 1000 milljörðum.

Allt þetta segir okkur að "þingmenn á plani" hljóti að fá aukin verkefni, til þess að lýðræðismálin komist fyrr og betur á dagskrá.

Tíminn styttist til að koma téðum umbótum í gegn því eðli sínu samkvæmt munu eignarhaldsflokkarnir Framsókn og Sjálfstæðismenn gera allt til að tefja og hindra þetta eins og sannaðist rétt fyrir síðustu alþingiskosningar.

Það má reikna með því að ferlið  takai a.m.k. tvö þing, tala nú ekki um ef líka skal efna kosningaloforðin um sjávarútvegsmálin.

Vilji Samfylkingin rétta hlut sinn eftir kosningarnar hlýtur hún að slá í bossann á Vg varðandi sjávarútveginn og reyndar líka  lýðræðismálin. 

Úrslit kosninganna í "nýframboðs" kjördæmunum eru klár skilaboð um þetta.

Aukum lýðræðið sem fyrst, verum hugrökk og

Stöndum saman

Kalli Matt

 

 

 

 


Lífeyrissjóðurinn Gildi og kannske fleiri.

Þú borgar í lífeyrissjóðinn Gildi. Þú þrælar þér út og þú verður óvinnufær. 

Aðalkallinn í Gildi kemst að því að þú ættir ekki að fá neitt út úr sjóðunum af því að þú færð pening frá Tryggingastofnun. (Kannske er svo dýrt að reka sjóðinn)

Spurning vaknar til hvers varst þú að borga þennan pening í Gildi ef þú færð ekki neitt til baka, þegar þörfin er mest?

Svo ef þu kvartar þá verður þú sem öryrki samkvæmt venju að leita réttar þíns í dómssölum allt til mannréttindadómstóla Evrópu. 

Er ekki kominn tími til að verkafólkið sjálft stjórni lífeyrissjóðunum?

Og þá það fólk sem kemur beint úr grasrótinni fólk sem fær ekki glýju í augun þegar það hittir peningafursta sem vill komast yfir þennan sparnað alþýðunnar.

Flokkarnir sem mynda ríkisstjórnina ættu að íhuga það alvarlega að leggja fram frumvarp til laga um lífeyrissjóði þar sem launþegum er skilað að fullu yfirráðum yfir þeim peningum sem þeim er gert að "spara" til mögru áranna.  Það myndi gefa lífii margra aukið gildi.

Stöndum saman

Kalli Matt


Mjólkurkvótinn - samþjöppun og einokun.

Já hverjir mega framleiða mjólk og selja hana ínn á hinn öfluga "samkeppnismarkað" mjólkurvinnslunnar?

Svar þeir sem eiga kvóta. Ef þú átt jörð og villt fara að framleiða mjólk þá verður þú að kaupa mjólkurkvóta. Af þeim sem eiga hann fyrir ef þeim þóknast.

það er sorglegt að sjá hvernig hvert mjólkurbúið á fætur öðrum hefur verið lagt niður og uppétið af MS og kannski einhverjum öðrum. Allt á forsendum hagræðingarinnar.

Hagræðingin er lausnarorð margra en hún getur leitt til einokunar. Við sjáum þetta í fjölmiðlum, við sjáum þetta í útgerðinni, byggingariðnaði og svona má lengi telja.

Er draumur hagræðingarinnar  um einn ofurtogara eitt ofurfrystihús, eina ofurbelja og eitt ofurmjólkurbú og kannske einn ofurbanka og einn ofureiganda að verða að verkuleika?

Á ekki að legga fram frumvarp um samþjöppun og einokun fyrirtækja á Íslandi? 

Hlýtur það ekki að vera hluti af hinu nýja Íslandi?

Stöndum saman

Kalli Matt


mbl.is Öll viðskipti með mjólkurkvóta stöðvuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerist eftir rúma fjóra tíma?

Við getum svo sem ekki svarað þessu en ákveðið hefur verið að hafa æðruleysismessu í Dómkirkjunni  í kvöld kl. 20.00.

Bræðrabandið og Anna Sigríður Helgadóttir sjá um tónlist en klerkarnir Hjalli, Kalli og Anna sjá um orðið ásamt góðum gesti, sem deilir með okkur reynslu sinni. 

Ekki verður æðruleysismessa í Dómkirkjunni aftur fyrr en í september. Svo nú er upplagt að fá hleðslu á sálarbatteríið fyrir sumarið.

Hvet alla sem þetta lesa að mæta og eiga með okkur ánægjulega stund í þeim mikla helgidómi sem Dómkirkjan er.

Stöndum saman

Kalli Matt


Sæmdin.

Þetta minnir okkur á Þorgeir nokkurn Hávarson sem hékk í hvönninni  vestra og dinglaði í lausu lofti en var of stoltur til þess að kalla á hjálp.

það eru ekki bara Íslendingar sem eru stoltir heldur Kínverjar líka.

Nokkuð er þetta fyndið eða kannske grátbroslegt. 

það er allt í lagi að biðja um hjálp þegar maður er hjálpar þurfi.

Stöndum saman

Kalli Matt


mbl.is Vildi ekki hringja eftir hjálp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitlaus tegund?

Kannski drakk hann vitlausa tegund, eða kannske hún, nema hvort tveggja hafi verið.  Verum edrú.

Stöndum saman

Kalli Matt


mbl.is Kona beit eyra af manni í gleðskap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vængjamessa í Guðríðarkirkju.

 

Vængjamessa  verðurí Guðríðarkirkju  annað kvöld kl. 20.00.

Þetta er messa sem tileinkuð er fólki er lifa vill án áfengis og vímuefna og aðstandendum alkahólista.

Falleg tónlist í umsjón Sylvíu Rúnar og Björns Tómasar og vitnisburður fólks með reynslu.

sr Karl V. Matthíasson og sr Sigríður Guðmarsdóttir þjóna fyrir altari.

Boðið er upp á kaffi eftir messu.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Stöndum saman.

Kalli Matt

 


Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband