Leita í fréttum mbl.is

Samfylking eða þúsund framboð.

Ég verð nú að segja eins og er að ég vildi sjá að Samfylkingin væri með mun meira fylgi í skoðanakönnunum en raun ber vitni. 

Hugga mig  við það að þessar kannanir eru ekki kosningar og margt mun örugglega breytast.

Af umræðunni má ljóst vera að mikil gerjun er í gangi í samfélaginu og fólk langt í frá ákveðið.

Við heyrum og lesum líka af ýmiss konar hugsanlegum framboðum. Tvö framboð eldri borgara og öryrkja, þá heyrir maður af að einhverjir innan "Draumalandisins" hyggi á framboð og svo er spurningin hvað Margrét Sverris mun gera og Kristinn H og svo Flokkurinn og svo auðvitað fleiri og fleiri eins og til dæmis ýmsir afburða menn sem hafa ekki verið bornir á gullstól í efstu sæti þeirra framboða sem fram eru komin. 

Flest á þetta fólk það sameiginlegt að vilja berjast gegn vaxandi  misskiptinu í landinu og þeim auknu álögum og misrétti sem venjulegir borgarar verða fyrir.

Flækjur almannatryggingakerfisins eru líka fjölda fólks ógreiðanlegar

Margt fólk er einnigi farið að hafa   áhuggjur af því að verðbólgan muni innan tíðar þeyta höfuðstóli íbúðalánanna langt yfir söluverð íbúðarinanr sem það á. 

Við þekkjum líka glundroðann sem ríkir á sviði áfengis og fíknimála.

Og svona má lengi telja.

Það er í sjáflu sér ekkert undarlegt við það að fleiri hundruðir karla og kvenna velti því fyrir sér að fara í framboð og hrekja sitjandi ríkisstjórn frá völdum því nú er nóg komið.

Mín sannfæring er sú að það verði ekki gert með því að stofna þúsund flokka - miklu frekar að koma til liðs við stjórnarandstöðuna. Skribentar  Sjáflstæðisflokksins ýta að sjálfsögðu undir hvers konar framboð til að vekja sundrungu meðal andstæðinga hans. Því fleiri framboð því betra fyrir íhöldin tvö.  

 Já kæru vinir ég hvet ykkur öll til að ganga í Samfylkinguna og efla starfið þar og gera það fjölbreyttara með góðum kröftum ykkar því við eigum það sameiginlegt að við viljum öll leiðrétta réttlætisvísitöluna í landiu.

Við síðustu kosningar fengum við Samfylkingarmenn 20 þingmenn það er staðreynd.

Og þó svo að skoðanakannanir séu ekki góðar getur þetta breyst og af því að ég er bjartsýnn og hef trú á málstað Samfylkingarinnar og því að Ingibjörg muni eflast til muna fyrir kosningarnar ásamt öðrum vöskum Samfylkingarmönnum eins og Össuri, Ágústi Ólafi,  Ástu R.  Guðbjarti Hannessyni, Önnu Kristínu, Kristáni Möller, Guðnýju Hrund, Gunnari Svavars, Kötu Júl, Björgvini G. Guðrúnu Erlings og Lúðvík Bergv. og Láru Stef, Roberti Marshall   Guðmundi Steingrims og Árna Páli og Einari snillingi Má , Jóhönnu Sig, Sigga P, Steinunni Valdísi, Merði Árna, Þórunni Sv. Helga Hjörvar, Helgu Völu og þúsundum öðrum þá kvíði ég engu og hlakka bara til bardagans í vor.

 Stöndum saman

X-S (Success)

Kalli Matt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Sæll gamli vinur. Á meðan Samfylkingin þorir ekki að ræða sjávarútvegsmál þá er engin von til neins annars en að fylgið ykkar skreppi endalaust saman fram að kosningum. Endilega farið nú að koma fram með afdráttalausa stefnu í kvótamálinu, það mundi auka fylgi ykkar um 15%.

Níels A. Ársælsson., 2.2.2007 kl. 10:32

2 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Samfylkingin er alveg klár í að ræða sjávarútvegsmál. Ingibjörg Sólrún ræddi á fundi með LÍÚ fyrir 2 árum að við þurfum að ná sátt í þessari grein. Ég hef sjálfur greint hvernig þetta er hægt og bendi á létta blog færslu um málið: http://eggerth.blog.is/blog/eggerth/entry/112340/

Eggert Hjelm Herbertsson, 3.2.2007 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband