5.2.2008 | 20:32
Iðrandi Framsóknarflokkur
Það er augljóst mál að við verðum að breyta lögunum um stjórn fiskveiða Ekki aðeins vegna úrskurðar mannréttindanefndarinnar, heldur líka vegna þess að kerfið er að brenna sjálft sig upp.
Það er gleðilegt að verða vitni að orðum hins iðrandi syndara sem Framsóknarflokkurinn er.
Smám sér sá flokkur að kvótakerfið hefur innleitt hörmungar yfir margar byggðir og bú og vonandi bætast fleiri í hóp hins iðrandi syndara.
Árásin á hið frjálsa kerfi sem smábátarnir unnu í var rothöggið. Kannski er best að hefja nýja göngu í gegnum smábátana og opna kerfið þaðan.
Fyrningarleið Samfylkingarinnar er góð leið. Ef menn skoða hana í alvöru og með hugrekki þess, sem óttast ekki lögmál hins frjálsa markaðar sjá þeir að hún er vel möguleg án þess að "rústa" sjávarútveginum.
Um sjávarútvegsmálin er auðvitað hægt að skrifa og skrifa og skrifa og tala og tala en það er ljóst að þjóðin vill ekki þetta kerfi, enda herðist snaran stöðugt að því.
Ég hvet LíÚ til að afneita því ekki að breytingar eru óhjákvæmilegar og taka frekar þátt í endurskoðuninni koma með jákævð innlegg úr sjóðum reynslu sinnar, okkur öllum til góðs.
Ég hef það á tilfinningunni að þeim Sjálfstæðismönnum muni líka fjölga sem krefjast "aukins aðgengis" að fiskimiðum okkar.
"Kyssið þið bárur bát á fiskimiði. "
Stöndum saman
Kalli Matt
Eldri færslur
- Júlí 2022
- Nóvember 2020
- Mars 2020
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- Mars 2016
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Ágúst 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Nóvember 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Apríl 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- eddaagn
- bjorkv
- gudfinnur
- prakkarinn
- lara
- bryndisisfold
- baldurkr
- salvor
- ingibjorgstefans
- hrannarb
- hreinsi
- pallieinars
- ingo
- agny
- arnalara
- gumson
- alfheidur
- reykur
- arnith2
- heilbrigd-skynsemi
- kaffi
- birnamjoll
- bjarnihardar
- bd
- bjornj
- blues
- gattin
- bryndisfridgeirs
- dagga
- einarben
- komediuleikhusid
- kamilla
- fanney
- garpur76
- gesturgudjonsson
- gtg
- gretaulfs
- gretarmar
- thjalfi
- orri
- gudrunkatrin
- zeriaph
- gunnarpetur
- gbo
- coke
- gylfigisla
- heidistrand
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- idno
- tru
- ingimundur
- irisarna
- jakobk
- enoch
- joninaros
- fiski
- thjodarskutan
- jonthorolafsson
- kiddijoi
- killerjoe
- kolbrunerin
- kristbjorggisla
- krist
- kristinm
- kristjanmoller
- mal214
- natan24
- nilli
- nielsfinsen
- solir
- olafursv
- olafurjonsson
- kex
- schmidt
- runar-karvel
- sirrycoach
- siggiholmar
- siggikaiser
- siggisig
- siggith
- steindorgretar
- summi
- sunnadora
- garibald
- svavaralfred
- saethorhelgi
- tommi
- tryggvigunnarhansen
- valdisa
- vefritid
- vestfirdir
- steinibriem
- steinig
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- thorha
Athugasemdir
Nú held ég að sé lag að breyta þessu kerfi. Framsóknaflokkurinn vill það ef það er eitthvað að marka hvað formaðurinn sagði í kastljósinu í kvöld. Mannréttanefnd Sameinuðu þjóðanna, hefur kveðið sinn úrskurð um að íslenskum stjórnvöldum beri að endurskoða þetta fiskveiðistjórnunarkerfi. Stefna Samfylkingarinnar er skír skapa sátt um nýtingu auðlinda hafsins með þátttöku allra hagsmunaaðila sem tryggði útgerðinni starfsgrundvöll til framtíðar. Breytingar á fiskveiðikerfinu miði að því að auðvelda nýliða að útgerð. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar stendur. Tryggja skal stöðuleika í sjávarútvegi. Gera verður sérstaka athugun á reynslunni af aflamarkskerfinu við stjórn fiskveiða og áhrifum þess á þróun byggða . Ég veit að þú ert allra vilja gerður til að breyta þessu ranga kerfi.
Vigfús Davíðsson, 5.2.2008 kl. 21:18
Ég hvet þig til dáðar Kalli, taktu á þessu óréttlæti sem við erum beittir og eins og þú segir er gott að byrja neðan frá það er smábátunum. Smábátarnir eyða engum fiskistofnum, náttúran ( veðrið ) sér um að stjórna okkar sjósókn.
Hallgrímur Guðmundsson, 5.2.2008 kl. 22:18
Margur á sín lengi að bíða.
Ákaflega er ég tregur til að trúa því að Samfylkingin og Framsóknarfl. séu reiðubúin að breyta réttindum hlutabréfa í mannréttindi.
En sú var tíðin að fólkið í sjávarbyggðunum átti hlutabréf í Almættinu.
Meira að segja ég átti svoleiðis bréf í eina tíð.
Árni Gunnarsson, 5.2.2008 kl. 22:28
Tími til komin að breyta þessu óréttláta kerfi þ.e. ef það verður hægt að fá frjálshyggjubrjálæðingana í Sjálftökuflokknum til að samþykkja það.
Valsól (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 00:12
Sæll Kalli minn,
Ég sé að það er enn grunnt á trillukarlinum í þér Man eftir þér vestur í Súgandafirði, nýskipaðan prestinn, í lopapeysunni á leið niður á bryggju og beint á sjóinn. Alvöru prestur,- hugsaði fólkið. Þú ert enn sannur trillikarl inn við beinið og berst enn fyrir landsbyggðinni. Áfram veginn Kalli.
Kveðja
Róbert Schmidt
Róbert Schmidt (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 00:34
Séra minn.
Sko, altso, það er ekki annað að gera en skera draslið upp og la´ta sjá, hvort ekki braggist nokkuð, þegar búið er að skera af, bæði Tilbera og sulli alla.
Sullaveikt þjóðskipulag fær ekki þrifist.
Sullir eru nægir hér og allmargir í þínum flokki.
Ekki fær þjóð þrifist, sem þarf að búa við þann kost, að sumir ráðherrar hennar boði algert framsal auðlinda til Evrópu-businessmanna og gírugra braskara þar.
Kvótakerfið er MANNANNA VERK og hefur nær gegnið af landslagi og náttúru allri fyrir neðan sjóvarmál-dauðri. Náttúran og tilheyrandi er verk Hins Hæsta Höfuðsmiðs Himins og Jarðar.
Ég er í liði HHHHoJ og tel því ekki neitt tiltökumál, þó að einhverjir gróðapungar væli þegar kerfið verður til húsbónda þess sent.
Með kveðjum Kærleikans og von um að þú látir hvergi af þe´r í baráttunni.
Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 6.2.2008 kl. 11:01
Er Sjálfstæðisflokkurinn jafn iðrandi og Frammarar? Er það ekki forsenda þess að einhverjar breytingar komist í gegn á þessu kerfi? Boltinn er algjörlega hjá þeim.
Heiðar (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 16:51
Bjarni Kjartans.
Bjarni minn þú mátt ekki slíta hlutina svona algerlega úr smahengi. Það sem ég sagði var margt og mikið í umræðu um stjóstangveiðar í atvinnuskyni. Á einn að geta komið með eitt tonn af fiski í land utan kvóta og fénýtt það til fulls á meðan annar má aðeins veið sér til matar.
Vertu sanngjarn. Meira að segaj þeir sem eru í þessum ferðabransa með sjóstöngina eru hlyntir kvótasetningunni. Reyndar er málið flóknara en það sýndist í fyrstu svo það verður örugglega í nokkurri vinnlus innan sjávarútvegsnefndarinnar.
Stöndum saman
Kalli Matt
Karl V. Matthíasson, 8.2.2008 kl. 01:11
Ég er sammmála þessu með trillur undir sex tonnum og skakrúllurnar. Finnst mjög eðlilegt að minnsat kosti að þeir sem eru með litla hæggenga báta ættu að mnnsta kosti að fá að veiða fyirr rekstri á slikri trillu. Þetta með leiguna er auðvitað alveg rétt hjá þér, en það er vandi allra í rauninni. Og við verðum að bregðast vel við þessari nýju atvinnugrein. Ég vona að við finnum góða lendingu en engu að síður er ég á þeirri skoðun að við getum ekki leyft þeim að veiða "frjálst" meðan aðrir þurfa að leigja eða kaupa fyirr milljónir. En aðalmálið er að við verðum að breyta lögunum í heild sinni og vona ég að það verði gert þannig að kerfið opnist nokkuð vel og gefi fleirum tækifæri til sjósóknar en nú er. Þar hljótum við að vera sammála. kveðjur Kalli Matt
Karl V. Matthíasson, 11.2.2008 kl. 00:38
Það verður aldrei friður í landinu með þetta kvótakerfi í þeirri mynd sem það er nú. Það hefur ekki skilað neinu af því sem því var í upphafi ætlað.. í flestum tilvikum þvert á móti.
300 milljarað skuldsetning í sjávarútvegi þar sem sáralítil endurnýjun á sér stað bendir til að þessar veðsetningarheimildir sem kvóta "eignin" heimilar ,að stærsti hluti þeirra fjármuna farið í eitthvað annað en sjávarúveg. Er ekki einn þessara "kvótaeigenda " nýlegur eigandi Toyota umboðsins svo dæmi sé tekið ?
Ég held að góð upphafsleið út úr þessu kerfi sé að aflétta öllum hömlum af trillum undir 6 tonnum og sé þar miðað við hámarksganghraða bátanna t.d 12-14 sjóm/klst (gömlu trillurnar) og 2 handfærarúllur. Jafnframt að hefja fyrningu kvótaeignar og taka í það svona 15 - 20 ár. Vistvænarveiðar skipi öndvegi og botnvörpu úthýst úr landhelginni að mestu.
Allavega það er mikið þjóðþrifaverk að vinna við að snúa ofanaf þessu skaðræðis kvótakerfi.
kveðja
Sævar Helgason, 11.2.2008 kl. 11:38
Held þú sért full fljótur að fagna stefnubreytingu Framsóknar Kalli. Get nú ekki séð að Lómatjarnarskassið sé neitt að bakka útúr núverandi kvótakerfi..
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.2.2008 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.