Bloggfærslur mánaðarins, mars 2012
25.3.2012 | 08:49
Gott skref hjá Gutta
Það er hræðilegt að sjá hvernig vímuheimurinn alkahól, kannabis og önnur vímuefni herja á þjóðina. Afleiðingarnar eru m.a. þær að margir fara á örorku vegna andlegra meina, sem efnin valda, í fangelsi, ótta við glæpaklíkur, uppgjöf í námi eða atvinnu, slitum á sambúð eða kæru sambandi, flutningi frá fjölskyldu, fjarhagserfiðleikum og svona mætti lengi telja.
Þeir sem starfa á þeim akri að hjálpa fólki til að rísa upp frá "dauðalífi" fíkniefnaheimsins sjá þetta mæta vel. Og margir hjálpararnir sem hafa reynt á eigin skinni hversu djöfullegur og illur þessi heimur er gleðjast þegar lagt er lið til stuðnings og heilunar gegn fíkniheiminum.
Vð skulum berjast gegn þessar mestu vá þjóðarinnar hvar sem við getum. Ég gladdist þegar ég las eftirfarandi orð Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra í gær:
"Atvinnutorg er nýtt úrræði fyrir fólk á aldrinum 1625 ára og voru fjögur slík opnuð nýlega í Reykjavík, Reykjanesbæ, Hafnarfirði og Kópavogi í samstarfi sveitarfélaganna, velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar. Markmiðið er að veita ungu fólki sem hvorki er á vinnumarkaði né í námi ráðgjöf og stuðning og finna því úrræði við hæfi sem geta falist í starfsþjálfun eða atvinnu, námi eða námstengdum úrræðum, áfengis- eða vímuefnameðferð eða starfsendurhæfingu. Úrræði standa til boða óháð rétti þessara einstaklinga innan atvinnuleysistryggingakerfisins og er það nýmæli." (Undirritaður skáletraði tilvitnun og sverti þann hluta sem hann vill vekja athygli á.)
Þau sem koma sér frá hinum illa heimi vímunnar, þar sem svartur á leik, vinna stórkostlega sigra, verða sigurvegarar. Lífið verður blessun í stað bölvunar. Og við skulum halda áfram að leggja málefninu lið hvar sem bardaginn fer fram.
Atvinnutorgið sem ráðherrann segir frá í grein sinn er mikilvægt lóð á vogarskálinu og gleðst ég vegna þess. Í því felst jákvætt viðhorf hans og Vinnumálastofnunar og allra þeirra sem hafa undirbúið þetta framtak. Fyrir það skulum við vera þakklát.
Og megi þessi dagur verða mörgum sem líður illa fyrsta skrefið til hins góða lífs.
Stöndum saman. Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2012 | 00:04
Fæðingardeild íslenzku krónunnar. (Kórónunnar)
Í nótt munu margar krónur fæðast. Þær munu verða fluttar af fæðingardeild sinni og lagðar með mikilli umhyggju ofan á þær krónur, sem fæddust nóttina áður, en þær krónur hvíla á enn öðrum, sem fæddust nóttina þar áður. Þeim fjölgar hratt og örugglega og staðurinn sem þær hvíla svo allar á eru útistandandi lán sem lánastofnanir eiga hjá því fólki, sem veðjaði ekki gegn þessari undraveru sem íslenska krónan er. Þetta eru verðbóta krónur. Nokkurs konar bætur fyrir þá, sem áttu krónur fyrir, af því að klósettpappírinn hækkaði, smjörið og bensínið.
Auðvitað verða bankarnir að fá bætur, auðvitað verða sparifjáreigendur að fá bætur, auðvitað verða lífeyrissjóðir að fá bætur það er auk þess svo dýrt að greiða úr þeim.
Og svo kemur að því að þeir sem fengu þessar krónur lánaðar geta ekki borgað meiri bætur af því að allt hefur hækka svo mikið, nema launin.
En við verðum að skilja að sigurganga krónufæðingardeildarinnar verður að halda áfarm, án tillits til þess þótt æ fleiri sjái fram á húsnæðismissi eða endalausar greiðslur til bankanna sem verða að greiða fjármagnstekjuskatt af þessum bótum sem þeir fá, af því að allt er að hækka, nema launin.
Haldið áfarm að borga, borgið, borgið, borgið meir í sjóð. Þetta skulum við syngja öll í einum kór.
Ef þú missir svo íbúðina þína sem þú tókst stórt lán til að eiga fyrir þig og börnin og ert búinn að greiða margar milljónir en sérð lánið hækka,hækka og hækka um jafnmargar milljónir getur þú huggað þig við það að kannski vill bankinn bara leigja þér hana, þegar hann er búinn að taka hana úr höndum þínum af því að þú getur ekki lengur greitt honum bæturnar fyrir hækkunin á klósettpappírnum, smjörinu og bensíninu. Lifi fæðingardeild íslensku krónunnar.
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Júlí 2022
- Nóvember 2020
- Mars 2020
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- Mars 2016
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Ágúst 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Nóvember 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Apríl 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- eddaagn
- bjorkv
- gudfinnur
- prakkarinn
- lara
- bryndisisfold
- baldurkr
- salvor
- ingibjorgstefans
- hrannarb
- hreinsi
- pallieinars
- ingo
- agny
- arnalara
- gumson
- alfheidur
- reykur
- arnith2
- heilbrigd-skynsemi
- kaffi
- birnamjoll
- bjarnihardar
- bd
- bjornj
- blues
- gattin
- bryndisfridgeirs
- dagga
- einarben
- komediuleikhusid
- kamilla
- fanney
- garpur76
- gesturgudjonsson
- gtg
- gretaulfs
- gretarmar
- thjalfi
- orri
- gudrunkatrin
- zeriaph
- gunnarpetur
- gbo
- coke
- gylfigisla
- heidistrand
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- idno
- tru
- ingimundur
- irisarna
- jakobk
- enoch
- joninaros
- fiski
- thjodarskutan
- jonthorolafsson
- kiddijoi
- killerjoe
- kolbrunerin
- kristbjorggisla
- krist
- kristinm
- kristjanmoller
- mal214
- natan24
- nilli
- nielsfinsen
- solir
- olafursv
- olafurjonsson
- kex
- schmidt
- runar-karvel
- sirrycoach
- siggiholmar
- siggikaiser
- siggisig
- siggith
- steindorgretar
- summi
- sunnadora
- garibald
- svavaralfred
- saethorhelgi
- tommi
- tryggvigunnarhansen
- valdisa
- vefritid
- vestfirdir
- steinibriem
- steinig
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- thorha