31.3.2007 | 00:20
Lifi Vestfirðir
Ég var á ferð í Vestubyggð og Tálknafirði síðustu daga. Þar er alltaf sama gamla góða gestrisnin og velvildin sem tekur á móti manni. Fyrstu tvo dagana vorum við Guðbjartur Hannesson á ferðininni, en hann þurfti svo að fara í Stykkishólm til að taka þátt í umræðuþætti á stöð 2.
Ég var áfram á svæðinu og finn það betur og betur, hvað stjórnvöld verða að taka sig á til þess að að endurheimta fyrri stöðu byggðanna á þessu svæði. Það tekur auðvitað tíma, en fyrst er að vilja. Íbúunum hefur fækkað hættulega mikið. það er því ljóst að næstu ríkisstjórn bíður mikil vinna til uppbygginar og eflingar í samvinnu við heimamenn. Þetta á reyndar líka við um norðanverða firðina.
Við í Samfylkingunni erum meðvituðu um það, að næsta ríkisstjórn verður að lljúka vegagerðinni vestur svo hægt sé að komast þangað án þess að berjast í holum fleiri, fleiri kílómetara malarveganna. Þetta hefur Ingibjörg Sólrún formaður Samfylkingarinnar marg bent á. Við viljum líka standa að nýjum störfum á vegum hins opinbera verði fjölgað, bæði sem störfum án staðsetningar og einnig í tengslum við rannsóknir á þorskeldi og jafnvel kræklingarækt og margt annað sem tengist þar mannlífi og sögu.
Í raun og veru eru Vestfiðir áskorun fyrir Alþingi sem á að vera framsækin og réttlát löggjafarsamkunda. Við í Samfylkingunni bindum miklar vonir við kosningarnar þann 12. maí næstkomandi því okkur langar til að koma að endurreisn og uppbyggingu sem mikil þörf er á. Jafnaðarflokkur berst fyrir jafnrétti á öllum sviðum - líka milli landshluta - og þar sem hallar á er nauðsynlegt að hugsjón jafnaðarstefnunnar ráði för.
Nú er ákveðið að framhaldsdeild skuli starfrækt á Patreksfirði í samvinnu við framhldsskólann í Grundarfirði. Ég gleðst yfir því, enda er það hið besta mál. En við verðum að gera okkur grein fyrir því, að svo myndarlega verður að standa að þessu verki, að nemendendurnir búi við sama kost og nemendur annarra framhaldsskóla í landinu.
Leggja verður einnig miklu meiri alúð við starf ferðþjónustunnar á svæðinu og veita "þolinmóðara" fjármangni í greinina en nú er. Lækkun flutningskostnaðar er einnig brýn nauðsyn, en það verður ekki gert án tilverknaðar yfirvalda. Og svona mætti lengi telja.
Ef við berum okkur til dæmis saman við Norðmenn og skoðum hvað þeir gera til varnar og jafnvel eflingar byggð sinni þá sjáum við að okkur vantar þar mikið upp á.
Eiga Vestfirðir að lifa? Mitt svar er lifi Vestfirðir. Að því skulum við stuðla
Stöndum saman
X -S
Kalli Matt
Eldri færslur
- Júlí 2022
- Nóvember 2020
- Mars 2020
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- Mars 2016
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Ágúst 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Nóvember 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Apríl 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- eddaagn
- bjorkv
- gudfinnur
- prakkarinn
- lara
- bryndisisfold
- baldurkr
- salvor
- ingibjorgstefans
- hrannarb
- hreinsi
- pallieinars
- ingo
- agny
- arnalara
- gumson
- alfheidur
- reykur
- arnith2
- heilbrigd-skynsemi
- kaffi
- birnamjoll
- bjarnihardar
- bd
- bjornj
- blues
- gattin
- bryndisfridgeirs
- dagga
- einarben
- komediuleikhusid
- kamilla
- fanney
- garpur76
- gesturgudjonsson
- gtg
- gretaulfs
- gretarmar
- thjalfi
- orri
- gudrunkatrin
- zeriaph
- gunnarpetur
- gbo
- coke
- gylfigisla
- heidistrand
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- idno
- tru
- ingimundur
- irisarna
- jakobk
- enoch
- joninaros
- fiski
- thjodarskutan
- jonthorolafsson
- kiddijoi
- killerjoe
- kolbrunerin
- kristbjorggisla
- krist
- kristinm
- kristjanmoller
- mal214
- natan24
- nilli
- nielsfinsen
- solir
- olafursv
- olafurjonsson
- kex
- schmidt
- runar-karvel
- sirrycoach
- siggiholmar
- siggikaiser
- siggisig
- siggith
- steindorgretar
- summi
- sunnadora
- garibald
- svavaralfred
- saethorhelgi
- tommi
- tryggvigunnarhansen
- valdisa
- vefritid
- vestfirdir
- steinibriem
- steinig
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- thorha
Athugasemdir
Skemmtilegur pistill. Ég reyndi að horfa á þáttinn með Guðbjarti á netinu og hann kom vel út úr honum. Það verður að gera þetta alminnilega í eitt skipti fyrir allt með samgöngurnar, það er alveg synsamlegt að þurfa að bera sig saman við litlu vini okkar Færeyinga sem eru með allt betra en við í vegasamgöngum ásamt ýmsu öðru.
Edda Agnarsdóttir, 31.3.2007 kl. 15:58
Auðvitað viltu einsog allir aðrir endurvekja góða tíma. Ég væri alveg til í að endurvekja okkar stundir saman á netaverkstæðinu í den. Nú eru bara aðrir tímar. Vestfirðir hafa orðið eftir, einsog svo margir aðrir staðir. Kanski var er bara staðan sú að aðrir urðu fljótari. Þess vegna þurfum við að passa okkur á að hefta ekki framför þeirra sem eru á undan á kostnað þeirra sem sitja og horfa á.
Svanur Guðmundsson, 1.4.2007 kl. 03:37
Áfram Kalli, en farðu að greina þetta betur! Hvað er það í jafnðarastefnu, ef eitthvað, sem ýtir undir byggðir eins og á Vestfjörðum. Kv.
Baldur Kristjánsson, 3.4.2007 kl. 21:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.