Leita í fréttum mbl.is

Oliver Twist

Ţegar ég var lítill drengur og hlustađi á mina yndislegu kennluskonu lesa Oliver Twist (Eftir nafna minn Dickens) ţá hugsađi ég međ feginleik hvađ ţađ vćri gott ađ ţessi saga vćri löngu liđin og meira ađ segja skáldsaga. (Sem betur fer endađi hún vel.)

Líklega var ţetta áriđ 1962. Ţá var ég grunlaus um ţađ,  ađ á sama tíma og ég felldi  tár í laumi oná skólaborđiđ, ađ Oliver litli vćri í rauninni rétt hjá mér vestur í Breiđavík, miklu einangrađri en sá sem sagt var frá í sögunni.  

Í framhaldi af ţessu vakna milljónir spurninga um litla einmana drengi, barđa drengi, sem alltaf er kalt, fullir af ótta og eiga ekki skjól. 

Ég trúi samt engu öđru en ţví ađ unglingaheimilin hér séu í góđu lagi núna og tel mig vita fyrir víst ađ svo sé, ţó alltaf sé hćgt ađ gera betur.

Fangelsismálin eru hins vegar afar döpur sbr. skömmina á Skólavörđustíg 9,  ţar sem ađbúnađurinn er ekki í nokkru samrćmi viđ ţađ sem siđmenntađar ţjóđir gera kröfu um. Hafa einhverjir Breiđuvíkurdrengjanna ţjáđst ţar líka?

Viđ skulum stefna ađ ţví ađ laga fangelsismálin hér. 

Stöndum saman

X-S (Success)

 Kalli Matt.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Ţór Magnússon

Á nćsta ári eru fjórir áratugir frá ţví ađ ég réđst til afleysingastarfa í Hegningarhúsinu viđ Skólavörđustíg - ţađ var á ţví frćga ári 1968. Ţá ţegar lá fyrir, ađ húsiđ vćri óviđunandi sem fangahús og yrđi einungis notađ í ţeim tilgangi ţangađ til hćgt yrđi ađ bjóđa vistmönnum og starfsmönnum mannsćmandi ađstćđur. Fjórir áratugir ...

Hlynur Ţór Magnússon, 5.2.2007 kl. 21:21

2 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Ég fór sem unglingur ađ skemmta föngum á Skólavörđustíg sem hefur ţá líklega veriđ fyrir rúmum ţrjátíu árum eđa tćpum fjörutíu eftir ţví hvernig menn vilja telja. Minnisstćđast er mér bókahilla sem var fyrir fanga ţví engin bók í henni var heil. Enginn hefđi getađ lesiđ endi á nokkurri sögu. En ég man líka eftir niđurníđslunni og hvađ var skrýtiđ fyrir 14 ára ungling ađ koma ţarna inn međ gítarinn sinn og spila og syngja. Ofar í götunni var svo Hvítabandiđ ţar sem viđ fórum líka. Viđ fórum miklu víđar á stađi ţar sem alţýđa manna kom ekki oft en ţessar litlu heimsóknir í stutta stund gáfu mér örlitla sýn inn í ţennan stofnanaheim og ég gleymi honum aldrei.

Lára Stefánsdóttir, 6.2.2007 kl. 00:29

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband