13.3.2009 | 11:38
Ég er genginn til liðs við Frjálslynda.
Ég hef ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn.Ákvörðun þessi helgast af því að skoðanir mínar og hugsjónir um sjávarútvegsmál á Íslandi eiga ríkan hljómgrunn í Frjálslynda flokknum. Viðhorf mín á þessu sviði hafa ekki skipað þann sess innan Samfylkingarinnar sem ég hefði kosið á undanförnum tveimur árum, sem kom vel í ljós í niðurstöðum prófkjörs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir skömmu. Ein meginástæða þess að ég hóf þátttöku í stjórnmálum er löngun mín til að stuðla að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins sem að mínu mati er með eindæmum ranglátt og felur í sér mikla mismunun. Það hefur ekki síst komið í ljós eftir að efnahagskreppan skall á Íslandi í október á síðasta ári en ég er þeirrar skoðunar að fyrirkomulag þessa kerfis eigi stóran þátt í þeim vanda sem þjóðin glímir nú við. Því verður eitt mikilvægasta verkefni í endurreisn landsins að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu á þann veg að arður þessarar dýrmætustu náttúruauðlindar landsins komi þjóðinni allri til góða. og skapi um leið fleiri atvinnutækifæri. Frjálslyndi flokkurinn hefur ávallt sett þessi mál í öndvegi. Ég hef því ákveðið að ganga til liðs við flokkinn og hlakka ég til að eiga gott samstarf við félaga hans. Á þessum tímamótum vil ég nota tækifærið til að þakka kærum vinum mínum í Samfylkingunni samstarfið á undanförnum árum og óska þeim alls hins besta. Virðingarfyllst Karl V. MatthíassonAlþingismaður
Eldri færslur
- Júlí 2022
- Nóvember 2020
- Mars 2020
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- Mars 2016
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Ágúst 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Nóvember 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Apríl 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- eddaagn
- bjorkv
- gudfinnur
- prakkarinn
- lara
- bryndisisfold
- baldurkr
- salvor
- ingibjorgstefans
- hrannarb
- hreinsi
- pallieinars
- ingo
- agny
- arnalara
- gumson
- alfheidur
- reykur
- arnith2
- heilbrigd-skynsemi
- kaffi
- birnamjoll
- bjarnihardar
- bd
- bjornj
- blues
- gattin
- bryndisfridgeirs
- dagga
- einarben
- komediuleikhusid
- kamilla
- fanney
- garpur76
- gesturgudjonsson
- gtg
- gretaulfs
- gretarmar
- thjalfi
- orri
- gudrunkatrin
- zeriaph
- gunnarpetur
- gbo
- coke
- gylfigisla
- heidistrand
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- idno
- tru
- ingimundur
- irisarna
- jakobk
- enoch
- joninaros
- fiski
- thjodarskutan
- jonthorolafsson
- kiddijoi
- killerjoe
- kolbrunerin
- kristbjorggisla
- krist
- kristinm
- kristjanmoller
- mal214
- natan24
- nilli
- nielsfinsen
- solir
- olafursv
- olafurjonsson
- kex
- schmidt
- runar-karvel
- sirrycoach
- siggiholmar
- siggikaiser
- siggisig
- siggith
- steindorgretar
- summi
- sunnadora
- garibald
- svavaralfred
- saethorhelgi
- tommi
- tryggvigunnarhansen
- valdisa
- vefritid
- vestfirdir
- steinibriem
- steinig
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- thorha
Af mbl.is
Fólk
- Sjónvarpsverðlaun afhent í fyrsta sinn
- Herra Hnetusmjör fagnar átta árum edrú
- Katrín prinsessa laumaðist á fund í Windsor-kastala
- Endurgerði þekkt kvikmyndaveggspjald buxnalaus
- Liam Payne borinn til grafar
- Elton John mætti allnokkrum kílóum léttari
- Fyrrverandi Playboy-kanína fær ekki aðgang að stefnumótaforriti
- Jarðarför Liams Payne í dag
- Vaknar grátandi af söknuði um miðjar nætur
- Náði botninum við dánarbeð ömmu sinnar
Viðskipti
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
Athugasemdir
Heill og sæll; Síra Karl !
Velkominn; í sjóhunda- og þungavigtarsveit Frjálslynda flokksins.
Fengur mikill; af einörðum málafylgjumönnum, hverjir gagn vilja gott gera; landi og fólki og fénaði, öllum.
Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 11:49
Ein spurning til þín Karl stefna FF er aðskilnaður ríkis og kirkju hver þín afstaða til þess?
Rannveig H, 13.3.2009 kl. 11:49
Vegna tímaleysis verður athugasemd mín afar stutt en innihaldsrík:
Velkominn Kalli
Sigurður Þórðarson, 13.3.2009 kl. 11:52
Athyglisvert Karl V.
Vona að þú haldir áfram að blogga og lokir ekki fyrir athugasemdir.
Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 12:19
Sárt þykir mér að sjá þið halda því fram að sjónarmið þín í sjávarútvegsmálum hafi ekki hlotið hljómgrunn innan Samfylkingar. Þú veist betur Kalli minn.
Á þeim framboðsfundum sem haldnir voru í kjördæminu nú fyrir prófkjörið var varla um annað meira rætt en sjávarútvegsmálin. Þú varst að vísu ekki á öllum fundunum. En á þeim var mikið rætt um sjávarútvegsmál. Ég veit ekki betur en Þórður Már Jónsson, ég og Guðbjartur höfum öll verið afgerandi í þeirri umræðu og samhljóða þeim áherslum sem þú vilt nú láta sem hafi verið þínar einkaáherslur. Þannig er það nú ekki.
En ég vil þakka þér fyrir þann tíma sem þú starfaðir og talaðir sem Samfylkingarmaður og varst samverkamaður okkar félaga þinna í flokknum. Gangi þér vel á nýjum slóðum.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 13.3.2009 kl. 14:54
Mér þykir þetta lítilmannlegt að svissa svona yfir. Móðgun við kjósendur þína og stuðningsfólk. Til hvers ertu þú eiginlega í pólítík? TIl þess að hafa áhrif, vera fulltrúi fólksins eða tið að fá þægilega innivinnu?
Afhverju fórst þú ekki í Frjálslynda ÁÐUR en prófkjörið var (þar sem þér var hafnað) Hví sagðir þú ekki að ekki hafið verið hlustað á þig í Samfylkingunni ÁÐUR en prófkjörið fór fram
Það er einmitt svona vinnubrögð sem eru ástæaðun fyrir því að einungis 12% landsmanna ber traust til Alþingis. Augljóst er að þú horfir í þína hagsmuni frekar en hagsmuni kjósenda þinna þegar þú svissar svona milli flokka eins og ekkert sé. þetta er lítilmannlegt og illt afspurnar fyrir alla sem ástunda stjórnmál. Sérr í lagi þig.
Ég vona sannarlega að þú rennir á rassinn í þessu framapoti þinu innan hins ömurlega Frjálslynda flokks. Við eigum betra skilið en sjálfspotadi vingla eins og þig á Alþingi.
Teitur Atlason (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 15:02
Ég harma þessa ákvörðun þína Kalli en vona ég óska þér velfarnaðar og vona að þú náir að breyta rasískri stefnu flokksins í málefnum innflytjenda.
Hilmar Gunnlaugsson, 13.3.2009 kl. 16:07
Ég get ekki lýst því með orðum hvað mér finnst þetta leitt. Aftur á móti hafa Frjálsl. fengið góðan liðsmann, án efa. Það er alveg rétt Samfylkingin hefur ekki alltaf verið samstíga í sjávarútvegsmálum. Ég vona að menn fari þó að gera sér grein fyrir þeim skaða sem þetta kerfi hefur haft á byggðir landsins.
Guðrún Katrín Árnadóttir, 13.3.2009 kl. 19:05
Í prófkjöri Samfylkingarinnar 2007 féll einn þingmaður í vonlaust sæti á framboðslista- sá hafði sama hátt á og þú núna - fór yfir til Frjálslyndra skömmu fyrir kosningar - sæll og vongóður- Viðkomandi er nú afturgenginn til liðs við Samfylkinguna. Leiðin að heiman er leiðin heim- því kynntist týndi sonurinn í Biblíusögunum.... En samt takk fyrir góða viðkynningu...í sjávarútvegsnefnd Samfylkingarinnar
Sævar Helgason, 13.3.2009 kl. 21:51
Eg er hissa a þvi að þu Kalli skulir ekki löngu farin yfir i Frjalslinda þvi þar att þu samhljom með öllum nema helst formanninum. Hann veit vel að það eru engir hæfari til að gera ut og veiða fisk heldur en þeyr sem i dag starfa i greynini. Hinir, sem ekki eru hugsjonarmenn, eru löngu bunir að selja sig ut og sitja a digrum sjoðum, tilbunir að keppa við okkur þessa skuldugu a rikisleigumarkaðnum sem þu og þinir likar vilja koma a. Eg man vel eftir þvi hvernig sjafarutvegurin var þegar bæjarutgerðirnar voru um allt land, bæjarbuar borguðu milljonir með þeym til að halda uppi vinnu.Þa var engin kvoti, veidd þrju til fimmhundruð þusund tonn a ari og allt a hausnum. Eg er ansi hræddur um að við sem erum i rekstri i dag yfirgefum flestir vettvangin ef verða einhverjar rottækar breytingar. Þvi við erum þreyttir og við göngum i gegnum sömu kreppu og aðrir landsmenn. Að lokum vil eg hropa þrefalt hurra fyir samfylkingarmönnum sem ekki letu glepjast af þeym fagurgala að hægt væri að skattpina sjavarutvegin meyr en orðið er.
Ps megi frjalslyndi flokkurin hverfa meeð þer. Barður Guðmundsson.
Barður Guðmundsson (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 23:57
Ég hef lengi fylgst með þér Karl og þínum málflutningi sem mér hefur fundist málefnalegur.
Ég er í meginatriðum sammála þínum áherslum í sjávarútvegsmálum.
Maður er aldrei fullkomlega ánægður með stefnu og verk síns flokks, en meginviðhorfin skipta áfram mestu máli.
Jafnaðarstefna og félagslegt réttlæti á lýðræðislegum forsendum er málstaður Samfylkingarinnar.
Hvernig við leysum úr þessu slæma öngstræti sem kvótakerfið hefur sett okkur í er ekki auðséð mál.
Hins vegar er það mín skoðun að þú komir síður að því verki sem þingmaður Frjálslyndra en liðsmaður í Samfylkingunni.
Stöndum saman.
Jón Halldór Guðmundsson, 14.3.2009 kl. 17:29
Það er nú fátt jafn skiljanlegt en að segja sig úr samfylkingunni, af mörgum og málefnalegum ástæðum. Sr. Karl er orðlagður sómamaður og er hann tilvalinn í að byggja Frjálslynda flokkinn upp að nýju. Auk þess er Samfylkingin búin að missa pólitískan trúverðugleika sinn á flestum sviðum. Slíkum flokki er ekki treystandi til að ganga til samninga út af Icesave deilunni, sem ætla sér að valhoppa með stjórnaskrána til Brussel eins og drukknir unglingar Ég reikna með því að sjávarútvegsmál verði á oddinum á næstu kosningum, auk ESB umræðunnar. Gangi þér sem allra best Karl.
Gunnar Kristinn Þórðarson (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 11:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.