Leita í fréttum mbl.is

Mun Seðlabankinn stefna Straumi- Burðarás?

Þeim fyrirtækjum fjölgar sem gera upp í evrum.  Hver er ástæðan? Þær eru eflaust margar.

Ég þekki mann sem rekur fyrirtæki. Hann sagði, að það myndi aldrei hvarfla að sér að taka "íslenskt lán"  vegna þess að það íslenska væri mun dýrara og mikli óvissa er því fylgdi. Hann tekur lán sín í evrum.  Hann er ekki sá eini og sífellt eru lögð fram dæmi um að verðbótalánin séu mund dýrari en lán í erlendri mynt. Enda er það svo að fleiri og fleiri flýja krónuna. Sumir eru svo heppnir að geta hoppað á milli mynta þegar þeim hentar aðrir eru fastir í verðbótunum. 

Og það er allur almenningur sem hefur tekið lán til að borga húsnæði sitt.  Það fólk sér höfuðstólinn hækka og hækka á lánum sínum án þess að laun þess hækki sem nokkru nemur. Það er varnarlaust og það má finna fyrír síhækkandi vöxtum. (Reyndar ætlar Seðalbankinn að bíða með að hækka vextina enn frekar, kannske til 13. maí)  Stjórnvöldin frá Seðlabanka niður í forsætisráuneyti hafa hingað til haft þá einu lausn að hækka vextina til varnar  verðbólgunni, það felur í sér auknar álögur á heimilin í landinu og enn meiri gróða fyrir bankana. Meira að sega Björgólfi sem á Landsbankann er nóg boðið, enda á hann sjálfur reynslu um að vera aðþrengdur og ég held að hann skilji betur kjör alþýðunnar en ýmsir þeir sem hafa allan sinn aldur alist upp við feiti og ket.

Einn seðlabankastjóranna lét að því liggja í fréttunum í dag að Straumur Burðarás færi á skjön við lögin með því að gera upp í evrum. Það var aðlamálið hjá honum en ekki vangaveltan um það hvers vegan Straumur Burðarás færi þess leið. 

Í framhaldi af þessum orðum  má spyrja ótal spurninga eins og til dæmis:

1. Mun Seðlabankinn stefna Straumi- Burðarás  eða framsóknarráðuneytinu sem gaf leyfi fyrir þessu?

2 Af hverju gerir Straumur Burðarás upp í evrum?

3. Munu aðrir bankar gera upp í evrum innan tíðar?

4. Munu enn fleiri fyrirtæki gera upp evrum fyrir reikningsárið 2007, en nú er?  (Tæplega 170 gera það fyrir árið 2006)

Af þessu öllu og mörgu öðru má ljóst vera að breytinga er þörf.

Stöndum saman

X-S (Success)

 Kalli Matt.

 


Gáta dagsins - djúpsálarfræði.

Það er töluverður munur á því hvernig Mogginn og Fréttablaðið handfjatla fréttina um "ekkiframboð" Draumalandsins.  Í Mogganum fær fréttin sömu stöðu og fréttin um  árásina sem gerð  var á tvíburaturnana í  New York.  

Fréttablaðið er hins vegar með frétt af þessu á annarri síðu og fer lítið fyrri henni.

Það er líka áhugavert að skoða myndbirtingu með fréttunum.

Það er verkefni fyrir dúpsálarfræðinga að finna það út hvað veldur svona misjöfnu fréttamati.

Sjálfur hef ég ákveðna skoðun á málinu, en ætla ekki að viðra hana strax og hvet lesendur til að skoða þetta og koma með skoðanir á þessu.

 Stöndum saman

X -S  (Success)

Kalli Matt


Bloggvinir - takk fyrir

Nú fer nóttin að nálgast og ég fer yfir daginn í huganum. Hvað var minnisstæðast í dag? 

1. Þegar Pétur 12 ára sonur minn og Aron jafnaldri hans og bekkjarbróðir voru að tala um hvort það gæti verið satt að jörðin væri kannske að eyðast af því að súrefnið færi að klárast og við myndum stikna til dauða.  Annar sagði: "kannske hefði verið betra að vera 12 ára þegar afi fæddist."

Það þarf að varast að vera með náttúrudauðatrúboð í skólum og gera börnin ábyrg fyrir því sem við hin fullorðnu erum búin að gera.  Náttúruverndarumræðan verður að vera yfirveguð og án spádóma um eld og eimyrju. Náttúruverndarmálin varðar okkur öll hún er alls ekki einkamál sumra.

2. Ingibjörg Sólrún í fréttavitalinu - hún er alltaf flott.  Vona  innilega að hún verði fyrsta konan í sögu þjóðar okkar til að verða forsætisráherra.  (Munum að kjósa Samfylkinguna 12 maí -- það er allt í lagi að gera annað í skoðanakönnunum.)

3. Andóf fjöskyldunnar þegar ég sauð siginn fisk og saltað selspik í matinn, það reyndist svo sérréttur minn. 

4. Fundurinn sem ég fór á og fékk verðlaun fyrir að hafa verið edrú í 21 ár. (Þökk sé Guði)

Ps. er að læra betur á bloggið, en fatta ekki alveg hvernig maður á að svara athugasemdum, en það mun örugglega koma eins og annað og svo þakka ég þeim sem vilja vera bloggvinir mínir.

 

Stöndum saman

X-S (Success)

Kallimatt


Breiðavík/Skólavörðustígur 9 = 1?

Enn erum við að tala um Breiðavíkurmálið og ekki nema von. 

Nú horfum við til fortíðar en við skulum athuga líka hvað nú er í gangi í barnaverndarmálum.

Hvernig eru vinnubrögð Barnaverndarstofu? Hversu fagleg sjónarmið ráða  þar ríkjum og hver fylgir eftir því að sú stofnun vinni faglega? Hvernig er samstarfi heilbrigðis og félgagsmálabatterísins háttað og hvernig er samstarf barnavenrndarstofu og félagsmálastofnana?

Og svoí framhaldinu er eðlilegt að spyrja:  Hvernig er fangelsismálin okkar? Við hvaða aðstæður býr Lalli núna er hann á ganginum þar sem hurðum er læst með hengilásum -- erum við sátt við meðferð okkar á föngum landsins. 

Ég er það ekki Skólavörðustígur 9 er Breiðavík nútímans og þar eru kannsi einhverjir "drengir" núna sem hanteraðir voru í Breiðavík forðum.

Tökum okkur á

Stöndum saman

X-S (Success) 

Kalli Matt

 

 


Tíðarandi

Kæru Hlynur, Lára og Helga Vala.

Ég þakka fyrir athugasemdirnar.

Mér finnst það sam Salvör skrifar líka um þessi mál mjög gott.

Ég sé það alltaf betur og betur hve nauðsynlegt það er að nýir vindar  fái að blása í meðferðarmálum hvers konar hér á landi, ekki síst fyrir unglinga, fíkniefnaneytendur og svo fanga.

Hvar er Lalli núna? Í fangelsi, kannski á ganginum þar sem dyrum er læst með hengilásum?

Vonandi fara menn ekki að afsaka þessa skelfingu með því að "þetta hafi bara verið tíðarandinn."

Er eitthvað að í dag hjá okkur, sem mun afhjúpast eftir 40 ár eða svo? Við verðum að vera gagnrýnin á okkur sjálf en auðvitað sanngjörn um leið.

 

Stöndum saman

X - S (SUCCESS)

 Kalli Matt 

 


Oliver Twist

Þegar ég var lítill drengur og hlustaði á mina yndislegu kennluskonu lesa Oliver Twist (Eftir nafna minn Dickens) þá hugsaði ég með feginleik hvað það væri gott að þessi saga væri löngu liðin og meira að segja skáldsaga. (Sem betur fer endaði hún vel.)

Líklega var þetta árið 1962. Þá var ég grunlaus um það,  að á sama tíma og ég felldi  tár í laumi oná skólaborðið, að Oliver litli væri í rauninni rétt hjá mér vestur í Breiðavík, miklu einangraðri en sá sem sagt var frá í sögunni.  

Í framhaldi af þessu vakna milljónir spurninga um litla einmana drengi, barða drengi, sem alltaf er kalt, fullir af ótta og eiga ekki skjól. 

Ég trúi samt engu öðru en því að unglingaheimilin hér séu í góðu lagi núna og tel mig vita fyrir víst að svo sé, þó alltaf sé hægt að gera betur.

Fangelsismálin eru hins vegar afar döpur sbr. skömmina á Skólavörðustíg 9,  þar sem aðbúnaðurinn er ekki í nokkru samræmi við það sem siðmenntaðar þjóðir gera kröfu um. Hafa einhverjir Breiðuvíkurdrengjanna þjáðst þar líka?

Við skulum stefna að því að laga fangelsismálin hér. 

Stöndum saman

X-S (Success)

 Kalli Matt.


"Enn mun þó reimt á Kili"

CO2- útblástur fer vaxandi á jörðinn. 

Við Íslendingar höfum nú á þessari stundu frá kl. 00.00 -- 05.02.2007 dælt ca 5000 tonnum af CO2 út í andrúmsloftið.

Maðurinn verður að taka sig á og draga úr brennslu sem myndar þetta koldíoxíð (CO2). 

Eitt af því er að stytta vegi sem bílar fara.  Því styttra sem einn bíll ekur þeim mun minni brennsla.

Ef Kjalvegur mun stytta vegalegndir og ef það kostar ekki of mikla brennslu að búa hann til og ef veðurfar er það gott að hann verður nánast opinn alla daga ársins og ef hann skiptir ekki hálendinu í tvo parta og ef og ef  eitthvað annað þá getur verið rétta að byggja hann.

Að afhenda Kjöl einkaaðilum til  vegalagningar og vegagerðar um aldur og ævi svona einn, tveir og þrír rétt áður en Sturla fer úr Samgönguráðuneytinu gengur hins vegar auðvitað ekki upp.

Vegatollar á bensíni og olíu eru það miklir að við þurfum ekki á einkavegaframkvæmdum að halda við eigum að fella niður öll veg-og gangagjöld fremur en að stefna í það að bæta við enn einum gjöldunum.

Á þetta hefur Gutti vinur minn í fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Nvest marg bent á í skrifum sínum um að afnema beri gjöldin í Hvalfjarðargöngin, því við borgum svo mikið í bensín og olíugjöldum..

Stöndum saman

 X - S (Success)

 Kalli Matt.


Samfylking eða þúsund framboð.

Ég verð nú að segja eins og er að ég vildi sjá að Samfylkingin væri með mun meira fylgi í skoðanakönnunum en raun ber vitni. 

Hugga mig  við það að þessar kannanir eru ekki kosningar og margt mun örugglega breytast.

Af umræðunni má ljóst vera að mikil gerjun er í gangi í samfélaginu og fólk langt í frá ákveðið.

Við heyrum og lesum líka af ýmiss konar hugsanlegum framboðum. Tvö framboð eldri borgara og öryrkja, þá heyrir maður af að einhverjir innan "Draumalandisins" hyggi á framboð og svo er spurningin hvað Margrét Sverris mun gera og Kristinn H og svo Flokkurinn og svo auðvitað fleiri og fleiri eins og til dæmis ýmsir afburða menn sem hafa ekki verið bornir á gullstól í efstu sæti þeirra framboða sem fram eru komin. 

Flest á þetta fólk það sameiginlegt að vilja berjast gegn vaxandi  misskiptinu í landinu og þeim auknu álögum og misrétti sem venjulegir borgarar verða fyrir.

Flækjur almannatryggingakerfisins eru líka fjölda fólks ógreiðanlegar

Margt fólk er einnigi farið að hafa   áhuggjur af því að verðbólgan muni innan tíðar þeyta höfuðstóli íbúðalánanna langt yfir söluverð íbúðarinanr sem það á. 

Við þekkjum líka glundroðann sem ríkir á sviði áfengis og fíknimála.

Og svona má lengi telja.

Það er í sjáflu sér ekkert undarlegt við það að fleiri hundruðir karla og kvenna velti því fyrir sér að fara í framboð og hrekja sitjandi ríkisstjórn frá völdum því nú er nóg komið.

Mín sannfæring er sú að það verði ekki gert með því að stofna þúsund flokka - miklu frekar að koma til liðs við stjórnarandstöðuna. Skribentar  Sjáflstæðisflokksins ýta að sjálfsögðu undir hvers konar framboð til að vekja sundrungu meðal andstæðinga hans. Því fleiri framboð því betra fyrir íhöldin tvö.  

 Já kæru vinir ég hvet ykkur öll til að ganga í Samfylkinguna og efla starfið þar og gera það fjölbreyttara með góðum kröftum ykkar því við eigum það sameiginlegt að við viljum öll leiðrétta réttlætisvísitöluna í landiu.

Við síðustu kosningar fengum við Samfylkingarmenn 20 þingmenn það er staðreynd.

Og þó svo að skoðanakannanir séu ekki góðar getur þetta breyst og af því að ég er bjartsýnn og hef trú á málstað Samfylkingarinnar og því að Ingibjörg muni eflast til muna fyrir kosningarnar ásamt öðrum vöskum Samfylkingarmönnum eins og Össuri, Ágústi Ólafi,  Ástu R.  Guðbjarti Hannessyni, Önnu Kristínu, Kristáni Möller, Guðnýju Hrund, Gunnari Svavars, Kötu Júl, Björgvini G. Guðrúnu Erlings og Lúðvík Bergv. og Láru Stef, Roberti Marshall   Guðmundi Steingrims og Árna Páli og Einari snillingi Má , Jóhönnu Sig, Sigga P, Steinunni Valdísi, Merði Árna, Þórunni Sv. Helga Hjörvar, Helgu Völu og þúsundum öðrum þá kvíði ég engu og hlakka bara til bardagans í vor.

 Stöndum saman

X-S (Success)

Kalli Matt.


Áttu fisk? - áttu vatn? - áttu land?

Framsóknarmenn settu það á kosningastefnuskrá sína fyirr fjórum árum að setja ætti í stjórnarskrá að fiskimiðin ættu að vera þjóðareigu. (nú hljóðar 1.gr laga um fiskveiðar upp á það) 

Nú lítur út fyrir að þeim takist það ekki, enda líklega lítill áhugi fyrir því í reynd, ef draga má ályktanir af frumvarpsflutningi þeirra og samþykkta á þingi um að vatn vors lands skuli í einkaeigu.

Og nú les maður á  textavarpinu að þjóðlendurnar  (sem búið er að ná af mörgum bændum með harðvítugum málferlum og aðförum) skuli fara undir Landsvirkjun sem síðar er ætlunin að selja hæstbjóðanda eða aðlabjóðanda. Þá verða þær ekki lengur þjóðlendur.  Trúði því einhver í alvörunni að það stæði til?

Nú er búið að selja/gefa bankana, símann og margt margt fleira, er við áttum sem þjóð og samfélag. Auðlindir landsins eru að hverfa úr höndum þjóðarinnar fyrir verk Sjálfstæðisframsóknarflokks. Hið heilaga takmark frjálshyggjunnar er auðvitað líka að selja sjúkrahúsin og skólana. Kannske tekst Sjálfstæðisflokknum það með hjálp Framsóknar á næsta kjörtímabili ef þeir fá.

Eitt af þvi sem einkennir kúgunarríki er að auðlindir þess eru í fárra höndum og menntun mjög dýr.

 Látum ekki Sjálfstæðisframsóknarflokkinn slátara síðustu búkollunni -- látum þau syngja er vorar:

 "Ég fer í fríið - ég fer í fríið"

Samfylkingin berst fyrir jafnrétti og jöfnum tækifærum allra -- ekki bara sumra vina og vandamanna.

Stöndum þétt saman. 

X-S (Success)

Kalli Matt

 

 


Eigi skal æpa upp -- heldur safna liði.

Það var alveg ótrúlegt að hlusta á Jón Baldvin æpa í gjálfri Egils og tala um enn einn nýjan flokk.

Ef öll sú orka sem hann notaði í þennan æsing færi í það að hvetja fólk til að standa fast á bak við Ingibjörgu og Samfylkingunni myndi fylgið aukast.  Þetta ættum við öll í Samfylkingunn að íhuga vel, þegar við leggjum út á völl kosningabaráttunnar.  Við kusum Ingibjörgu og við skulum leggja allt sem við getum í það að standa trygg og taust að baki henni sem hún algerlega verðskuldar og Samfylkingunni okkar. 

Minnumst hinnar glæsilegu ræðu sem Össur flutti þegar Ingibjörg tók við af honum og hann hvatti okkur öll til að eflast og halda ótrauð áfram við það að stækka flokkinn og gera hann að öflugu forystuafli í íslenskum stjórnmálum og fylkjast um Ingibjörgu.  Látum okkur ekki detta það í hug að eitthvað sé of seint. Koningabaráttan er varla hafin -  óttumst eigi.    Fram Sam-fylking. 

X-S (Success)

 Kalli Matt


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband