Færsluflokkur: Bloggar
12.4.2010 | 23:17
Munum við raunverulega sjá eitthvað nýtt?
Ég hef fylgst með fréttum af skýrslunni í dag. Í rauninni fannst mér einhvern veginn eins og mest af þessu hafi komið fram fyrir utan nokkra brandara.
Stærstu eigendur bankanna rændu þá - þó svo að það megi ekki segja það berum orðum. Framkvæmd einkavæðingar láðs og lagar var einkavinavæðing, sem fór fram á ævintýralega spilltan hátt.
Já en nú ætlum við að breyta öllu til hins betra í stjórnsýslunni og svo framvegis. .... En þegar ég vakna á morgun þá munu Jón Asgeir og LÍÚ segja mér fréttirnar, Óli Óla færa mér varninginn heim Björgólfur Thor selja mér íbúfen, Finnur Ingólfs lesa af rafmagnsmælinum ogskoða gamla Skódann minn, Lýður fá símagjöldin og Pálmi selja mér flugmiða og svo framvegis. Lífeyrissjóðir verða áfram undir valdi þeirra sem ekkert eiga í þeim og svo auðvitað munu örfáir eiga fiskana í stóra fiskabúrinu umhverfis landið. Því miður. En við verðum að sýna þessu skilning.
Stöndum saman.
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.4.2010 | 19:42
Ég Á.
Ef ég hef aðgang að fjármagni og kaupi banka. Þá má ég fá það að láni serm aðrir leggja inn í bankann því það fé er eiginlega orðið mín eign.
Ef ég veiddi markríl í fyrra þá á ég alla makríla sem eiga eftir að verða til í framtíðinni.
Þetta er auðvitað augljóst. Atvinnulífið verður að standa traustum fótum.
Ef einhver segir eitthvað á móti þessu þá íhuga ég alvarlega að höfða meiðyrðamál.
Stöndum saman.
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vængjamessur eru nýbreytni í Guðríðarkirkju. þær miða að því að styðja og styrkja fólk sem hefur eignast nýtt líf án áfegnis og fíkniefna og einnig miða þær að þvi að vera aðstandendum áfegnis- og fíkniefnaneytenda styrkur. Þetta eru messur gleði og vonar
Fólk sem hefur lifað í návígi við Bakkus á mikla og erfiða reynslu að baki.
Ein leiðin til þess að losna úr frá kvíðanum og óttanum sem fylgir þessum djöfli er auðvitað leið trúarinnar, lofgjörðarinnar og bænarinnar.
Vængjamessurnar hafa það hlutverk að styrkja fólk í því að komast frá kvíða og ótta.
Í vængjamessunum tjá sig tvær manneskjur sem eru á leiðinni frá bakkusarbölinu. Önnur sem aðstandandi og hin sem alkóhólisti. Svo er auðvitað fallegur sálmasöngur og einsöngur Sylvíu Rúnar, fyrir nú utan góðar og fallegar bænir, uppbyggjandi Guðs orð ásamt, eilítilli hugvekju útfrá því.
Allir eru velkomnir og auðvitað er upplagt fyrir þá sem einhverra hluta vegna komust ekki í messu um páskana að mæta í Guðríðarkirkju kl. 20.00 í kvöld.
Stöndum saman
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2010 | 10:20
Skírdagur - fótaþvotturinn.
Að skíra þýðir að hreinsa eða þvo. Jesús þvoði fætur lærisveina sinna á þessum degi. Af því heitir þessi dagur skírdagur.
Sá sem gengur að borði drottins í einlægni og auðmýkt mun einnig verða hreinn, höfum það líka í huga þegar við veltum því fyrir okkur hvers vegna dagurinn heitir ekki kvöldmáltíðardagurinn.
Hér á eftir er þetta betur út -skýrt með tilvitnun í Jóhanesarguðspjall.
Með því kennir hann okkur hvernig við eigum að koma fram hvert við annað:
"2Kvöldmáltíð stóð yfir. Djöfullinn hafði þegar blásið því í brjóst Júdasi Símonarsyni Ískaríots að svíkja Jesú. 3Jesús vissi, að faðirinn hafði lagt allt í hendur honum, að hann var frá Guði kominn og var að fara til Guðs. 4Hann stóð upp frá máltíðinni, lagði af sér yfirhöfnina, tók líndúk og batt um sig. 5Síðan hellti hann vatni í mundlaug og tók að þvo fætur lærisveinanna og þerra með líndúknum, sem hann hafði um sig. 6Hann kemur þá að Símoni Pétri, sem segir við hann: "Herra, ætlar þú að þvo mér um fæturna?"
7Jesús svaraði: "Nú skilur þú ekki, hvað ég er að gjöra, en seinna muntu skilja það."
8Pétur segir við hann: "Aldrei að eilífu skaltu þvo fætur mína." Jesús svaraði: "Ef ég þvæ þér ekki, áttu enga samleið með mér." 9Símon Pétur segir við hann: "Herra, ekki aðeins fætur mína, líka hendurnar og höfuðið."
10Jesús segir við hann: "Sá sem laugast hefur, þarf ekki að þvost nema um fætur. Hann er allur hreinn. Og þér eruð hreinir, þó ekki allir." 11Hann vissi, hver mundi svíkja hann, og því sagði hann: "Þér eruð ekki allir hreinir."
12Þegar hann hafði þvegið fætur þeirra, tekið yfirhöfn sína og setst aftur niður, sagði hann við þá: "Skiljið þér, hvað ég hef gjört við yður? 13Þér kallið mig meistara og herra, og þér mælið rétt, því það er ég. 14Fyrst ég, sem er herra og meistari, hef nú þvegið yður um fæturna, þá ber yður einnig að þvo hver annars fætur. 15Ég hef gefið yður eftirdæmi, að þér breytið eins og ég breytti við yður. 16Sannlega, sannlega segi ég yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans né sendiboði meiri þeim, er sendi hann. 17Þér vitið þetta, og þér eruð sælir, ef þér breytið eftir því. .....""
Fjóla, dóttir mín, fermist í dag, það er svo mikil gleði hjá henni og frænka hennar Elísabet Arna líka, þar er einnig mikil gleði.
Já þessi dagur er fallegur vegna allra ungmennanna sem játa munu trú sína í dag.
Guð blessi framtíð þeirra allra og megi hann einnig styrkja okkur í því að vera þeim góðar fyrirmyndir og styrkur á lífsins vegi.
Stöndum saman
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2010 | 09:34
Smjörklípan og kötturinn.
Jóhanna Sigurðardóttir koma víða við í ræðu sinna á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar.
En mest virðist hafa verið einblínt á ummæli hennar um fáeina ríkisstjórnarþingmenn Vg.
Ekkert óeðlilegt við það að menn hafi tekið eftir þessum ummælum, þetta ver svoltið fyndið. En nú hefur verið gert úr þessu kattarfár mikiið.
Fjölmiðlar gerðu þessum mikil skil og sumir mjög mikil höfðu viðtöl og svo framvegis. Vg sjálf fórr ekki á taugum út af málinu þó það hafi verið blásið út.
Þessi mikla umræða um köttinn minnir auðvitað á smjörklípu aðferðina. Þú setur smá smjörklípu á kött og þá tekur hann til við að sleikja hana og á meðan beinist athygli hans ekki að bráðinni, sem við viljum vernda.
Nota sumir þessi ummæli sem smjörklípu til að beina athyglinni frá öðru sem boðað eða sagt var í ræðunni?
Ég hvet alla til að lesa ræðuna og skoða hvaða boðskap foreætisráðherra þjóðarinnar hafði að segja um atvinnumál, sjávarútvegsmál, fangelsismál o. m.fl.
Stöndum saman.
Kalli Mattt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2010 | 00:32
Útvarpspredikun á pálmasunnudegi.
Hér á eftir kemur útvarpspredikun mín sem flutt var í útvarpinu s.l. pálmasunnudag. Fyrst kemur guðspjallið sem lagt var út af. Njótið heil.
Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk um beina en Lasarus var einn þeirra sem að borði sátu með honum. Þá tók María pund af ómenguðum, dýrum nardussmyrslum og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu fætur hans. En húsið fylltist ilmi smyrslanna. Segir þá Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans, sá er mundi svíkja hann: Hví voru þessi smyrsl ekki seld fyrir þrjú hundruð denara
og gefin fátækum? Ekki sagði hann þetta af því að hann léti sér annt um fátæka heldur af því að hann var þjófur. Hann hafði pyngjuna og tók af því sem í hana var látið. Þá sagði Jesús: Lát hana í friði. Hún hefur geymt þetta til greftrunardags míns. Fátæka hafið þið ætíð hjá ykkur en mig hafið þið ekki ávallt.
Nú frétti allur fjöldi Gyðinga af því að Jesús væri í Betaníu og þeir komu þangað, ekki aðeins hans vegna heldur og til að sjá Lasarus sem hann hafði vakið frá dauðum. Þá ákváðu æðstu prestarnir að taka einnig Lasarus af lífi því vegna hans sneru margir Gyðingar baki við þeim og fóru að trúa á Jesú.
Degi síðar frétti hinn mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem. Fólk tók þá pálmagreinar, fór út á móti honum og hrópaði:
Hósanna!
Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins,
konungur Ísraels!
Jesús fann ungan asna og settist á bak honum, eins og skrifað er:
Óttast ekki, dóttir Síon.
Konungur þinn kemur
og ríður ösnufola.
Lærisveinar hans skildu þetta ekki í fyrstu en þegar Jesús var dýrlegur orðinn minntust þeir þess að þetta var ritað um hann og að þeir höfðu gert þetta fyrir hann.
Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi, Amen.
Líf og ást, tryggð, þjónusta, þakklæti, auðmýkt, gjafir, Ilmur, dásamlega góð lykt, heilbrigður maður sem risinn er upp frá veikindum sínum og dauða, fórnfýsi, takmarkalaus elska, undrun, aðdáun, sigurgleði, fögnuður, væntingar og viska.
Öfund, hatur, reiði, gremja, svik, þjófnaður, launráð, myrkur og dauði.
Öllu þessum mætum við í textum guðspjalls Pálmsunnudagsins, sem að þessu sinni er tekið úr Jóhannesar.
Þegar við íhugum atburði pálmasunnudagsins sjáum við yfirleitt fyrir okkur innreiðina í Jerúsalem þar sem Jesús Kristur kemur á asnanum inn um borgarhliðið og allir fagna og leggja klæði sín á veginn og pálmagreinar sem sigurtákn eru.
Upp í hugann kemur falleg ljósgeisla mynd eða sunnudagaskólamynd af Jesú á asnanum og öllu fólkinu í kring um hann.
En nú má segja að guðspjalli þessa dags fylgi nokkur formáli, sem segir frá dvöl hans í vinahúsi og atburðum sem áttu sér stað í kvöldverðarboðinu þar. Þegar við lítum gestalista þessa boðs sjáum við að Jesús er þar auðvitað, lærisveinarnir líka en enginn þeirra sérstaklega nefndur nema Júdas Ískaríot.
Gestgjafarnir eru systurnar Marta og María og bróðir þeirra Lasarus, sem Jesús kallaði frá dauðanum til lífsins.
Já, þarna eru þau þessi hópur í kyrrð kveldsins og friði og allur blær frásögunnar ber vott um einfaldleika, mikla elsku, hreinleika systranna og tengingu við lífið sjálft en hér hvílir þó skuggi yfir, sem kemur fram í orðum Jesú er hann segir fyrir um dauða sinn. Orð sem komu til vegna ásakana Júdasar Ískaríots um bruðl og jafnvel skeytingarleysi.
Yfir öllu þessu hvílir svo hið dimma ský grimmdar, einþykkni og valdagræðgi prestanna sem vilja Jesú dauðan og Lasarus líka til ómerkja kraftaverkið er Jesús reisti hann upp frá dauðum.
Jesús er nú kominn að Jerúsalem, borg hinna grimmu valdsmanna en fólkið fagnar og vonar á hann, hleypur á móti honum eins og það búist við því að asninn sé gullasni en það er ekki svo. Því fyrsta verk Jesú var svo að fara inn í musterið og ryðja þar um koll borðum víxlaranna og síðan að predika með miklum áminningum og ádeilum inn í samtíma sinn.
Og af hverju er verið að segja frá þessu núna svona löngu, löngu síðar á allt öðrum tíma og allt öðrum stað á hnettinum og það jafnvel í útvarpið.
Reyndar er sjálf frásagan svo mögnuð að hún ein og sér kemur okkur til að pæla í mörgu um mannlegt eðli og eigindir, svo sem góðmennsku, illgirni og margt fleira. En það er þó ekki ástæðan heldur er hún sú að þessi: Jesús er Kristur. Sá er gekk veg sinn allan til písla og dauða á krossi en jafnframt til upprisunnar til þess að koma því til skila að Guð vill við okkur tala. Benda okkur elsku sína, eilífa lífið og gefa okkur reglu um það hvernig líf og starf Jesú Krists á að vera okkur öllum fyrirmynd í lífi hvers okkar og eins. Það er ástæðan
Á þeim tíma sem við nú lifum er okkur hollt að íhuga vel hvers við væntum og hvað það skal vera sem á að móta líf okkar. Hvaða boðskapur á að vera okkur leiðarljós inn í myrkur samfélags sem hrundi eins og borð víxlaranna í musterinu forðum.
Hvernig ætlum við að ganga fram á veginn sem einstaklingar og sem þjóð. Hver er sú viska sem við ætlum að fara eftir á komandi mánuðum og árum hvaða orð á að verða grunnur hinnar ný byggingar sem hýsa skal samfélag okkar?
Í Guðspjallinu getum við valið á milli tveggja lausna. Önnur vísar til græðgi svika og lýðskrums, en hin vísar til auðmýktar, þolinmæði og fórnfýsi.
Margir hrópa nú: "Mín leið er best allt annað er vitleysa og svik" og enn aðrir kalla: "Hér er ég með lausnina minn asni er gullasni."
En ef við setjumst niður og gefum okkur tóm til íhuga í heiðarleika og kristilegum anda spurningar eins og þessar. Hvað er best fyrir fjölskyldu mína og framtíð? Hvað er best fyrir heildina? Hvað er best fyrir þjóð mína? Þá koma upp svör sem fela í sér erfiðleika og glímu en jafnframt felast í þeim frelsun frá vandanum að lokum því að þessi svör koma úr sjóðum andlegra gæða og hirslum kærleikans.
Það er nauðsynlegt að gagnrýna og benda á það sem betur má fara en þegar slíkt er gert verðum við að vera heiðaleg og sanngjörn meðvituð um það að gagnrýnin eigi að verða til uppbyggingar og blessunar en ekki til þess að hugsa um eigin hag eins og Júdasi fórst í kvöldverðarboðinu, hann þóttist bera hag hinna fátæku fyrir brjósti sínu en ásældist sjálfur sjóðinn.
Það er hvatning kirkjunnar að við gefum nú gaum að lífi Jesú Krtists boðskap hans og kærleika og að við látum það allt þvo og næra huga okkar og hjarta. Að við látum það siðferði er hann boðaði okkur móta samfélag okkar á leiðinni út úr vandanum svo við getum komið heimilunum og þjóðarskútunni á réttan kjöl. Til þess að við getum eignast samfélag sem öðrum verður til fyrirmyndar og fátækum til hjálpar.
Um þessar mundir ganga þúsundir ungmenna að altari kirkjunnar og staðfesta skírnarsáttmála sinn. Önnur taka við blessun trúfélags síns og enn önnur fermast borgaralegri fermingu. Stærstur hluti heils árgangs hér á landi lifir nú tímamót í lífi sínu eignast stund sem geymist í hjartanu.
Og foreldrarnir allir eiga þá bæn eða ósk í hjarta sínu að barn þeirra muni eiga gott og farsælt líf fyrir höndum og að barnið þeirra muni verða öðrum til góðs á lífsveginum. Og spurt er hvað getum við gert til þess. Við bendum þeim á boðskap trúarinnar og vegi hinna göfugu dyggða. Það hljótum við að gera ekki síst þegar við okkur blasir sú hryggilega staðreynd að margt er gert til að afvegaleiða þau.
Já, hver er mesta hættan sem blasir við börnum þessa lands. Eru það lítil auraráð, minna af blandi í poka eða betri nýting á fatnaði öllum. Við vitum að svarið við því er nei.
Mesta hættan felst í þeirri vá sem í peningaþorsta, alkahóli og öðrum vímuefnum býr.
Hvað er sorglegra en að vita af unglingspilti eða unglingsstúlku sem tæld hafa verið af blekkjandi auglýsingum og skrumi drekka sinn fyrsta bjór eða teyga í lungu sín kannabisreyk, sjúga í nef sér hvíta efnið eða gleypa töflur sem ummynda og afskræma umhverfi og tilfinningar allar?Forsætisráðherra þjóðarinnar tilkynnti í gær áform um að byggt verði nýtt fangelsi á Íslandi. Vissulega er það brýnt og að mörgu leyti mannúðarmál sé hugsað til þess aðbúnáðar sem allmargir æskumenn þessa lands hafa búið við og gæslumenn þeirra.
En þessi brýna nauðsyn verður því miður rakin til aukinnar áfengis og fíkniefnaneyslu, sem einnig leiðir til margrar annarrar ógæfu en fangelsisvistar.
Við skulum biðja þess að ekkert þeirra ungmenna sem nú vaxa úr grasi eigi eftir að sofa á bak við luktar dyr þessa fangelsis né nokkurs annars.Líf án áfengis og líf án annarra fíkniefna er til fyrirmyndar. Það var stórkostlegt að vera vitni að viðtali við Jóhönnu Guðrúnu söngkonu okkar þar sem hún tjáði að hún væri bindindiskona og að hún þyrfti ekki að drekka eða dópa eins og sagt er til þess að finna gleðina í lífinu og ótalmargir aðrir lifa slíku lífi í gleði og þakklæti.
Bjór, brennivín eða önnur fíkniefni gefa hvorki sanna ánægju né fegurð.
Kristin trú er fagnaðarboðskapur og sá kraftur, þakklæti og gleði sem sú trú gefur er hyrningar steinn þess lífs sem við óskum börnum okkar.Nú er pálmasunnudagur og við heyrðum um hina fallegu þjónustu sem María veitti Jesú með þvi að bera smyrslin á fætur honum og þerra með hári sínu. Sú þjónusta og ást fyllt allt í kring um þau góðum ilmi og við heyrðum líka hvernig mannfjöldinn fagnaði honum en hafnaði síðan af því að auðmýktina og trúna skorti.
Í huga okkar og hjarta skulum við á þessum pálmasunnudegi ganga til móts við Jesú Krist taka á móti kærleika hans og þjóna Guði í einlægni lífi okkar sjálfra til blessunar og þjóðinni til góðs.
Dýrð sé Guði föður og syni og heilögum anda svo sem var í upphafi er og verður um aldir alda amen.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2010 | 16:28
Ræða Jóhönnu og sitthvað fleira.
það kom vel fram í ræðu Jóhönnu hversu einörð hún er í því að auðlindir Íslands eigi að vera í höndum þjóðarinnar, en ekki örfárra hagsmunaaðila. Auðvitað hljótum við að taka undir slík orð, ekki síst í þeirri stöðu sem við nú erum. Um þetta hljótum við líka að hugsa í því uppgjöri sem við nú eigum. Annnars ætla ég ekki að greina þessa ræðu frekar en hana er hægt að lesa á vef Morgunblaðsins. Ég hvet fólk til að lesa þessa ræðu og velta því fyrir sér hvort aðalmálið í ræðunni hafi verið hótanir um stjórnarslit eins og Mbl. gefur í skyn á forsíðu vefs síns.
Annars er ég núna að semja predikun fyrir útvarpsmessu sem verður í útvarpinu á morgun. Textinn er auðvitað innreið Jesú í Jerúsalem. Ég hvet alla að lesa þennan texta í Jóhanesarguðspjalli og einnig til að íhuga atburðina sem komu í kjölfarið og dymbilvikan er helguð.
Kirkjan býður upp á margvíslegt helgihald um bænadaga og páska. Það er öllum holt að nota þennan tíma til að íhuga eigið líf og tilgang þess og kristnum mönnum sérstakt tilefni til að sækja helgihaldið hvar sem þeir eru á ferð um landið þessa daga.
Stöndum sman.
Kalli Matt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.3.2010 | 23:38
Orð skulu standa.
Ríkisstjórnarflokkarnir gáfu báðir kosningaloforð um að breyta fiskveiðstjórnarkerfinu. Þar fóru þeir nærri hvor öðrum Og það var örugglega meining á bak við það.
Nú er spjallinu við LÍÚ um málin lokið, sem betur fer. Enda eru þeir eru hvorki til í að semja um einn skötusel né hálfan þorsk.
Næsta vers hlýtur að vera það, að Jón ráðherra lætur makrílinn á markað eða lætur greiða fyrir hvert kíló í ríkissjóð. Þjóðinni ber að fá sinn hlut úr auðlind sinni.
Samfylkingin og Vg verða að leggja fram frumvarp til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða ef þau ætla að uppfylla loforðin sem þau gáfu þjóðinni.
Það má ekki gerast síðar en á þinginu í haust. Annars brenna þau inni.
XD og XB munu gera allt til að eyðileggja frumvarp sem breytir kerfinu - það vitum við. Ný lög verða nauðsynlega að vera komin til framkvæmda eigi síðar en eftir eitt ár.
Tíminn líður og flokkarnir verða að mynda sem fyrst öfluga samstöðu um það frumvarp sem leggja skal fram. Það er aðeins um eina sátt að ræða. Þ.e. sáttin sem á vera hjá þjóðinni um að fiskimiðin eru sameign hennar og henni ber að fá sinn skerf og miðin eiga ekki að vera vettvangur þrælandi leiguliða stórútgerðar og banka.
Stöndum saman.
Kalli Matt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.3.2010 | 08:25
Ekki á leið í ríkið eða til dópsalans.
Ég vil hvetja alla til að vera edrú um þessa helgi, dymbilvikuna og páskana. Það er svo gott vera edrú, það er svo gott að vakna til nýs dags án þess að vera timbraður, þunnur eða hafa tæmt veskið sitt eða aukiið við skuldirnar á visakortinu.
Það er svo gott vera edrú úti í náttúrunni, borginni sinni, þorpinu sínu eða bænum sínum og teiga að sér þetta líf sem Guð hefur gefið okkur.
Edrú öðlumst við betri yfirsýni yfir líf okkar, njótum betur gleði ástarinnar, eigum yndislegri stundir með börnunum okkar, stjórnum betur skapinu, tökum betur á vonbrigðum og vinnum betur úr sorg. Minnkum líkur á slysum og alls kyns rugli.
Ég hvet þig lesandi minn góður, hvort sem þú ert ráðherra, verkakona, prestur, þingmaður, læknir, smiður, afi eða amma, pabbi eða mamma, lögmaður, ritstjóri, ´bróðir eða systir, blaðamaður, ráuneytisstarfsmaður, öryrki, eða hvaða starfi eða stöðu þú gegnir til að lifa án áfengis næsta hálfa mánuðinn.
Ef þjóðin lifiði án áfegnis þá væri nú mun betra ástand í landinu.
Áfengisneysla eykur ofbeldi, girnd og reiði. Áfengisneysla og önnur fíkniefnaneysla er alltaf varasöm.
Ég ætla að vera edrú í dag, hafa kollinn eins kláran og mögulega er unnt vegna krefjandi verkefna og vegna heimilis míns og starfs.
Ég ætla að vera þakklátur fyrir lífið, taka eftir því og reyna að vera öðrum góður.
Já jafnvel þó markviss okurvél hinna alkahólísku verðbóta vinni gegn heimili mínu.
Megi þessi dagur verða okkur öllum góður.
Stöndum (edrú) saman.
Kalli Matt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2010 | 22:11
Baráttan um lóðir sjávarins.
Þessi barátta átti sér stað í Noregi þegar fiskeldi var að byrja þar og vonadi getum við gegnið í smiðju til þeirra. Verum nú fagleg og látum ekki vini, flokksskírteini, önnur tengsl eða tækifærismennsku ráða ferðinni þegar lóðum hafsins verður úthlutað.
Þegar ég sat á þingi vakti ég athygli á því að það þyrfti að semja lög um útdeilingu þessara gæða. Ekki aðeins hvað fiskeldi allt varðar heldur líka kræklingarækt og annað í þessum dúr. Nú leggja menn kræklingaspotta um allar "jarðir". Ef við látum skeika að sköpuðu þá verður annað "auðlindarifrildi" komið á fullt í Gaulverjabæ nútímans.
Stöndum saman
Kalli Matt
Ágreiningur um laxeldi í Arnarfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Júlí 2022
- Nóvember 2020
- Mars 2020
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- Mars 2016
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Ágúst 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Nóvember 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Apríl 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- eddaagn
- bjorkv
- gudfinnur
- prakkarinn
- lara
- bryndisisfold
- baldurkr
- salvor
- ingibjorgstefans
- hrannarb
- hreinsi
- pallieinars
- ingo
- agny
- arnalara
- gumson
- alfheidur
- reykur
- arnith2
- heilbrigd-skynsemi
- kaffi
- birnamjoll
- bjarnihardar
- bd
- bjornj
- blues
- gattin
- bryndisfridgeirs
- dagga
- einarben
- komediuleikhusid
- kamilla
- fanney
- garpur76
- gesturgudjonsson
- gtg
- gretaulfs
- gretarmar
- thjalfi
- orri
- gudrunkatrin
- zeriaph
- gunnarpetur
- gbo
- coke
- gylfigisla
- heidistrand
- helgatho
- hildurhelgas
- drum
- idno
- tru
- ingimundur
- irisarna
- jakobk
- enoch
- joninaros
- fiski
- thjodarskutan
- jonthorolafsson
- kiddijoi
- killerjoe
- kolbrunerin
- kristbjorggisla
- krist
- kristinm
- kristjanmoller
- mal214
- natan24
- nilli
- nielsfinsen
- solir
- olafursv
- olafurjonsson
- kex
- schmidt
- runar-karvel
- sirrycoach
- siggiholmar
- siggikaiser
- siggisig
- siggith
- steindorgretar
- summi
- sunnadora
- garibald
- svavaralfred
- saethorhelgi
- tommi
- tryggvigunnarhansen
- valdisa
- vefritid
- vestfirdir
- steinibriem
- steinig
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- thorha