Leita í fréttum mbl.is

Ég sakna Dags

Ég vil hvetja vini mína í minnihlutanum í höfuðborg okkar Íslendinga til að sýna ekki sömu vanstillingu og heiftarreiði sem við urðum vitni að hjá fyrrverandi minnihluta þegar síðasti meirhluti var myndaður.

Vil segja það að mér fannst Dagur vera frábær borgarstjori, fara vaxandi og lofa mjög góðu. Ég er viss um að Dagur á góða pólitíska framtíð fyrir höndum.

stöndum saman

Kalli Matt


Róðurinn - Smásaga

Róðurinn. 

Alla ævi sína hefur hann átt heima þar og margt hefur borðið við í þessu plássi sem hafði lifibrauð sitt af því að veiða fisk og vinna og selja svo til útlanda.

Að kaupa sér í soðið þekktist ekki það var auðvitað svo sjálfsagt að allar fjölskyldurnar fengju hrogn og lifur, ýsu, steinbít, kola eða jafnvel lúðu í matinn án þess að vigtað væri eða talið á einhvern hátt.   

Nú er öldin önnur. Ljósvélar bátanna eru þagnaðar, bátarnir farnir, brenndir í áramótabrennum og ungu strákarnir og stelpurnar sjá ekki framtíð sína þar lengur, þau eru farin eða eru á leiðinni í burt.

Og allt landsbyggðarfólkið sem  hefur safnast saman á Holtum og Hólum fyrir ofan gömlu Reykjavík, setur sig í skuldir fyrir milljónir til að geta búið í nýbyggðum húsunum, stórverktaka og einkavæddra banka.

Þó ekki alveg allir, einn og einn eru eftir, sem geta ekki skorði á þennan þráð, eða ósýnilega naflastreng sem liggur frá móður jörð og djúpi sjávar inni í hjarta þess sem fór ekki suður. 

Og þar sem hann stendur í flæðarmálinu og heyrir gjálfur öldunnar skora á sig að koma og róa nú til fiskjar á þessum eina báti sem óbrenndur er við bryggjuna Bryggjuna sem eitt sinn var heimkynni óendanlegrar ástar og framtíðarvona . Já hann heyrir gjálfur öldunnar hvísla þessum seiðandi ögrunar- og ástarorðum: "Komdu, komdu það er ekki allt búið komdu."

 

Um hann fer straumur. Hann fer heim,  niður í kjallara fer í lopapeysuna, síðu nærbuxurnar, stígvélin og stefnir niður í bát. Nú skal róið. Hnum er andskotans sama þó verðbréfamiðlarinn sé sagður eiga allan fiskinn í Heimafirði. Já honum er andskotans sama um allt, nema það að mega lifa hér áfram og sjá líf sitt dafna í blessun og friði eins var.

  Og vélin fór í gang. Listerinn klikkaði ekki og á miðin var stutt. Þetta var dásamlegt. Múkkinn var kominn að sníkja lifur. Hann söng. Hann söng:  “Sjá dagar koma ár og aldir líða.”  Hann söng svo hátt að klettarnir fyrir ofan Hrafnseyri heyrðu sönginn og frelsis álfarnir, dvergarnir og tröllin vöknuðu og hrópuðu og kölluðu sína á milli: “Bárunum tókst að vekja hann Jón, Hann er farinn út á sjó að veiða fisk.”  Og Jón hann veiddi fisk og fór í land. Hann var orðinn maður á ný og hann fór meira að segja með fiskinn heim og flatti alveg eins og Pétur gerið forðum. Nú var allt eins og það átti að vera framtíðin komin á ný.  

En viti menn, þegar hann var að klára að fletja síðasta fiskinn kemur þá ekki lögreglan, fiskistofa, fulltrúar ráðneytis og fjárfesta á staðinn og taka Jón fastan og honum er haldið þangað til þyrlan kemur. Læknirinn ætlar að gefa honum sprautu en Jón streitist á móti og fellur á eyrað. Hann er settur upp í þyrluna og farið með hann. Jón rankar við sér í sjúkrastofunni allt er hvítt í kringum hann. Nú heyrir hann suð. Það er eyrunum og hann hugsar: “Þetta er niður brimsins sem ég heyrði þegar ég var barn,”

Stöndum saman.

Kalli Matt 

 

 


Frábært hjá Bjögga

Þetta er frábært og vona ég að þessum málum verði fylgt fast eftir. Áægjulegt að íbúðalánasjóður er farinn að taka við sér og vinna í anda Björgvins G. Sigurðssonar.  Enn er það viðhorf til að þeir sem skulda hafi engan rétt til að mótmæla innheimtugjöldum hvers konar eða öðrum kröfum í tengslum við skuldir. Björgvin er að ræsa liðið hvað þetta varðar og má með sanni segja að hann sé hinn besti neytendamálaráðherra.

 

stöndum saman

Kalli Matt


mbl.is Seðilgjöld heyri sögunni til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Predikun á jólanótt í Kópavogskirkju

Kæri lesandi ég óska þér gleðilegra jóla. Hér er jólapredikun sem ég flutti í Kópavogskirkju.

Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og drottni Jesú Kristi. Amen. Nóttin var sú ágæti ein í allri veröld ljósið skein Það er nú heimsins þrautar mein að þekkja hann ei sem bæri.Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Þannig hefst ljóðið eða sálmurinn sem Einar Sigurðsson í Heydölum orti fyrir rúmum fjögur hundruð árum, en er enn um jólin  sunginn í flestum kirkjum þessa lands, þó gamall sé.  Einar kaus sjálfur að nefna þennan sálm:  Kvæðið af stallinum Kristí eða Vöggukvæði. Í sálmabókinni er hann 6 vers en í rauninni er hann miklu lengri . Viðlagið er ávallt hið sama: “Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.” Öll eru versin einstaklega falleg en jafnframt  þrungin guðfræðilegi og siðfræðilegri merkingu.Allir atburðir Jólaguðsspjallsins sem lesið var hér áðan eru dregnir upp í  kvæðinu og jafnvel færðir til þess tíma og staðar sem Einar lifði í og á. Já honum tekst að færa boðskap jólanna í huga sinn, hjarta og sál og tjá að það allra mikilvægasta og dásamlegasta sem til er sé að geta tekið á móti Jesúbarninu og látið boðskap þess helga sig hreinsa.  Einar er óhræddur að tjá trú sína, einfaldleika hennar og kröfu. Og það er svo augljóst að þessi maður sem lifði hér í landi skammdegis, kulda og hörku oft á tíðum, Já hann nær því að öðlast gleði og fögnuð, tæra gleði og innilegan fögnuð yfir því að hafa kynnst þessu barni Jesú Kristi. Ekkert annað skiptir máli en að mega hræra vögguna með vísnasöngnum góða. Jesús var von Einars. En hver er von okkar nútímamanna í lífinu eða þurfum við kannski engar vonir í þessu landi, sem frægt er orðið fyrir allsnægtir og velmegun. Þurfum við engar vonir, bænir eða áköll í veröld gríðarlegrar tækni og þekkingar.  Er eitthvað vit í því að segja nú eins og Einar byrjar sálm sinn?:    Emmanúel heitir hann herrann minn enn kæri.Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.  Er þetta eitthvert vit -- er eitthvert vit í trúnni og þar að auki trú á barn sem fæðist næstum því úti í móum. Við heyrum þær raddir æ sterkari að trú okkar sé hindurvitni og bábilja.  Og að Guð sé ekki til og að maðurinn eigi að reiða sig á eigin mátt, megin og skynsemi?  Og að við ættum að skella lokum fyrir  þær rásir er boða okkur, hvað afar okkar og ömmur gerðu til að öðlast styrk í nauðum og harmi og þær raddir er tjá okkur, að kyrrð og friður Guðs anda kemur til þeirra sem ákalla hann eða þakka honum velgjörðir í lífinu. Engin Guð-  enginn blekking, enginn Jesús - ekkert plat.  Í  fyrsta erindinu segir Einar:  Það er nú heimsins þrautar mein að þekkja hann ei sem bæri.    Þegar ég var barn fannst mér það dásamlegt að hafa fengið að læra um Jesú og allt það yndislega sem hann gerði fyrir okkur mennina og reynsla bænarinnar færði mér vissu um það að Guð væri til og að hann væri líka yfir og  allt um kring með eilífri blessun sinni. Þessi trúarvissa gaf sanninn um það að þó syrti stundum illa í álinn að þá væri ég aldrei einn og að allt mundi fara vel að erfiðleikar og ótti ættu eftir að víkja fyrir betri tíma og blessun.   Trú þeirra sem lenda í raunum miklum verður oft til styrktar og stuðnings og reynsla þeirra sem hafa hreppt þann fögnuð að hitta Jesú verður ósjálfrátt til þess að fólk íhugar í alvöru þennan einstaka möguleika tilverunnar, að játast honum. Það gerði Einar og reynsla hans verður til þess að hann trúir því, að þrautarmein heimsins sé að þekkja ekki Jesú sem bæri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Og nú getum við spurt hvort þessi sannindi Einars úr Heydölum eigi við um nútíma okkar. Skortir heiminn þekkingu á Jesú Kristi Væru þrautarmein heimsins ekki minni ef við í einlægni færum eftir boðskap hans og kenningu. Boðskapnum um skilyrðislausa ást á náunganum, um fyrirgefningu og einlægan vilja til að sættast við mótstöðumenn okkar.  Lofið og dýrð á himnum hátt honum með englum syngjum þrátt Friður á Jörðu og fengin sátt fagni því menn sem bæri Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Þegar kristin trú verður fyrir gagnrýni svarar hún sjálf með boðskap sínum. Boðskapnum um kærleika, en kærleikurinn er það afl sem sterkast er og öflugast í lífinu.  Guð er kærleikur og þess vegna sendi hann son sinn Jesú Krist í heiminn til að frelsa okkur frá illu, frá hörmungum, svikum, lygum, ágirnd, prett og táli. Því allt þetta vinnur gegn góðu lífi en orð Guð byggir upp og skarpar einingu og frið.  Og hvað annað er það sem börnin þrá, öll börn þessarar jarðar er draga nú andann og vonast til þess að eiga góða framtíð í einingu og friði og sátt við allt fólk. Þannig erum við líka öll sköpuð með þessa innbyggðu löngun eftir friði og kyrrð en stundum er það svo að við villumst af leið að við hættum að þekkja hann sem bæri og því þörfnumst við leiðsagnar hans og miskunnar alla tíð ávallt.  Guð er kominn í heiminn sem lítið barn, Jesú Barn sem gaf okkur allt sem það átti. Það er Jesú Barn er færir þeim sem sakna, huggun og von. Jesú Barn sem færir frelsun og hugrekki þeim sem lokaðir eru inni í fangelsum eða sæta kúgun. Jesú  Barn sem gefur auðmýkt þeim sem fullir eru af hroka og stærilæti. Jesú Barn sem gefur þeim  gleði og frið er þjást af reiði, fíkn eða græðgi.    Já þetta Jesú barn á allt sem við þörfnumst og það vill gefa okkur hvað eina er á skortir til þess að líf okkar verði  eins og það á að vera.  Á þig breiðist elskan sætAf öllum huga ég syndir grætFyrir iðran verður hún mjúk og mæt Miður en þér þó bæri.Með vísnasögn ég vögguna þína hræri.  Amen.  

Vinaleiðin.-til upplýsingar

Vinaleiðin - upplýsingar og siðareglur

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um Vinaleiðina, en það er stuðningur við börn í samstarfi skóla og kirkju á nokkrum stöðum, er hér birt stutt lýsing á verkefninu ásamt þeim siðareglum sem um það gilda.

 

Hvað er Vinaleiðin?


Vinaleiðin er verkefni sem var þróað í samvinnu kirkju og skóla í Mosfellsbæ fyrir nokkrum árum. Vinaleiðin er framhald þess samstarfs þegar leitað er til kirkjunnar í tengslum við áföll og missi. Vinaleiðin er hluti af stoðkerfi þeirra skóla sem bjóða upp á hana. Til stoðkerfis heyra skólastjórn, námsráðgjöf, sálfræðiþjónusta, skólahjúkrun og sérkennsla.

Í þjónustu Vinaleiðar felst að eiga samleið með barninu, hlusta, mæta því á sínum eigin forsendum og setja sig í spor þess. Þessi stuðningur er oft nefndur sálgæsla. Þar er reynt að hjálpa barninu til að finna sínar eigin leiðir. Ef um alvarlegan vanda er að ræða er haft samráð innan stoðkerfis skólans og við foreldra/forráðamenn um leiðir.
Vinaleiðin er ávallt kynnt foreldrum og forráðamönnum barna og byggir á trúnaði. Þó getur upplýsingaskylda er hefur velferð barnsins að leiðarljósi stundum vegið þyngra en þagnarskyldan og er barninu gerð grein fyrir því.
Í sálgæslu Vinaleiðarinnar er lögð áhersla á að mæta barninu eins og það er og borin er full virðing fyrir lífsskoðunum þess.

Siðareglur

 

  • Ætíð skal stuðla að velferð barna og unglinga á þeirra eigin forsendum, svo og að virða þeirra mörk.
  • Ekki skal fara í manngreinarálit í samskiptum við börn og unglinga, svo sem vegna kynferðis, stöðu, skoðana eða trúar.
  • Ekki skal stofna til óviðeigandi sambands við börn eða unglinga.
  • Gæta skal trúnaðar og þagmælsku um hvaðeina sem starfsfólk verður áskynja í starfinu. Þagnarskylda á ekki við þegar mál koma upp er varða ákvæði um tilkynningarskyldu (sbr. IV. kafla Barnaverndarlaga, nr. 80/2002).
  • Starfsfólk skal ávallt vera upplýst um lög og reglur er gilda um skóla.
  • Ávallt skal kynna Vinaleiðina fyrir foreldrum/forráðamönnum barna.
  • Vinaleiðin er þjónusta af hálfu Þjóðkirkjunnar við skólabörn, en ávallt á forsendum skólans (sbr. http://kirkjan.is/biskupsstofa/?stefnumal/kirkja_og_skoli ) og að höfðu samráði við foreldra/forráðamenn.
  • Í sálgæsluviðtölum geta trúarleg efni sem hver önnur borið á góma. Slík umræða er þó ávallt að frumkvæði barns eða foreldris/forráðamanns og út frá eigin lífsviðhorfi þess.
  • Prestar og djáknar er starfa að Vinaleiðinni skulu sækja handleiðslu hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.

Halldór Reynisson, 13/11 2006


Bönnum jólaföndur í leikskólum -- er það ekki næst?

Nú mega prestarnir í Seljahverfi ekki koma í einhverja leikskóla þar vegna hinna. Nú má vinaleiðin ekki vera farin í Garðabæ vegna hinna. Nú má skólinn ekki gefa fermingarbörnum leyfi til að fara í vatnaskóg vegna hinna. Nú má ekki hafa grunnskóla sem grundvallast á kristunum gildum vegna hinna. Nú má ekki klæða nýfædda drengi í blátt og stúlkur ekki í bleikt, ég veit ekki vegna hverra.

Er ekki næst að banna jólaföndur, jólafrí, páskafrí og svo framvegis?

Lifi frelsið

Stöndum saman

Kalli Matt


Forsætisþjónn.

Tillaga Steinunnar Valdísar er orð í tíma töluð og vekur líka upp spurningar um hlutverk ráðherranna.

Ég held að það sé þannig í gervallri Evrópu að merking þessara starfsheita beri það í sér að um þjónshlutverk sé að ræða. Þýðir ekki "minister"  "þjónn" Preminister gæti þá verið þýtt sem fremstiþjónn eða jafnvel forsætisþjónn.  Með slíkri breytingu myndu konur sem eru í þessum embættum hætta vera herrar.  En um leið  myndi hið nýja starfsheiti fela sér í hina réttu merkingu. 

Til þjónustu reiðubúinn.

Stöndum saman

Kalli Matt 


Að bíða, fresta eða geyma. (Á forvarnardegi)

Eitt aðaltrikkið í forvörnum í dag er að segja við börnin að bíða með að drekka eða fresta því um einhvern tiltekinn tíma.  

En það er sjaldnar sagt að best væri að lifa lífi án vímugjafa.

Þó börn og unglingar fresti því að drekka um eitt ár eða tvö eða jafnvel sjö þá er ekki þar með sagt að þau muni ekki lenda í feni alkóhólismans.

Auðvitað er það rétt að "frestur er á illu bestur"  það er augljóst mál að barn sem er 12 eða 13 ára gamalt og byrjar að drekka bjór er í alvarlegri hættu. Hættan hverfur ekki þó þetta barn eldist þó svo að hún verði auðavitað minni.

Skilaboðin um að bíða og fresta eru góð en vörumst samt að að skapa einhvers konar eftirvæntingu og tilhlökkun til þess dags þegar allt verðu í lagi með drekka og jafnvel félagsleg skylda.

 

Stöndum saman

Kalli Matt


Byggðasamningar við einstaklinga

Eitt af þvi sem ríkið gæti gert til þess að koma ungu fólki í húsnæðisvandræðum út úr þeim væri að kaupa upp fullt af húsnæði úti á landi og leigja því svo húnæðið. Gera "einstaklings byggðasamnina" gegn ákveðnum fríðindum og sjá svo um að þetta fólk fengi vinnu. Hér er ég að tala um störf án staðsetningar.  En um það er sérstakt ákvæði í ríkisstjórnarsáttmálanum.

Ég veit að það er til fullt af ungu fólki sem vill gjarnan byrja búskap sinn á því að að eiga heima úti á landi jafnvel þó það hafi alist upp í  þéttbýlinu. Því miður hefur orðið hrun á sumum stöðum landsbyggðarinnar, en ef atvinnutækifærin verða fleiri og samgöngurnar betri og háhraðatengingar í lagi þá er nokkuð ljóst að margir nýttu sér þau tækifæri. Það hafa dæmin sannað.  Miklar vonir eru bundbar við fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að auka jöfnuð á milli landshluta.

Stöndum saman

 Kalli Matt 

 


Frábær kvöldstund á Löngumýri - gott kjödæmisþing og heillaóskir til brúðhjóna.

Ég fór norður í Skagafjörð á föstudaginn. Ég naut frábærrar kvöldstundar á Löngumýri þar sem Skagfirski kammerkórinn var með dagskrá ásamt skáldinu Sigurði Hansen og nemendum sjöunda bekkjar Varmahíðarskóla. Fyrir hlé voru sungin ljóð Sigurðar ásamt því sem hann las nokkur ljóð sín, djup og falleg ljóð. Eftir hlé söng kórinn svo nokkur ljóða Jónasar Hallgrímssonar en á milli söngsins fluttu krakkarnir í 7. bekk þætti úr ævi Jónasar sem þau höfðu tekið saman. Var það einstkalega vel gert og ánægjulegt. Þau eiga greinilega góðan kennara. Vil ég nú þakka fyrir þetta frábæra kvöld á þessum góða stað, en af honum á ég fallegar minningar frá því að ég var þar ungur drengur, en móðir mín vann þar eitt sumar þegar þjóðkirkjan var með sumarbúðir. 

Daginni eftir var svo kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í Hótel Varmahlíð þar sem  Eggert Herbertsson gamall Ólsari sem býr á Akranesi , Guðmundur Haukur á Hvammstanga og Ragnhildur bóndi á Álftavatni í Staðarsveit voru kosin til að stýra kjördæmisráðinu til næsta aðalfundar. Ingibjörg Sólrún mætti á staðinn ásamt Ágústi Ólafi og Skúla Helgasyni framkvæmdastjóra flokksins. Þetta var góður fundur og vel mætt á hann þrátt fyrir óhagstætt veður. Það er greinilegt að miklar væntingar eru gerðar til Samfylkingarinnar, bæði hvað varðar velferðar- og byggðamál.

Rétt er svo ljúka þessum pistili með því að óska þeim Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu innilega til hamgingju með gifinguna. Guð blessi framtíð þeirra og líf.  Gleðjumst með þeim.

Stöndum saman

Kalli Matt

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson

Legg þú á djúpið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband