2.11.2007 | 15:42
"Sigurganga einkavæðingarinnar" Nýr Alþýðubanki og ljósið í myrkrinu.
Í rauninni ætti ég nú að segja frá ferð undirritaðs forseta eða formanns Vestnorrænaráðsins á þing Norðurlandaráðs og þeirri ánægjulegu athygli sem tillögur Vestnorrænaráðsins hlutu í Ósló.
En þegar ég kom heim uppfullur af einhverri flensu, hæsi, hita og hósta voru fyrstu fréttirnar um vafasama verðlagningu Bónus og Krónunnar í tengslum við verðkannanir. Er þetta rétt? Búum við í eina ríki heimsins þar sem "sigurganga einkavæðingarinnar" er að breytast í helsi einokunar?
Að auki þjaka vextir og verðbætur íslenska fjármaálkerfisins skuldarana. Og lánin bara hækka og hækka en launin ekki neitt nema lítið eitt. Er nema furða að fólk sé farið að horfa til Evrunnar?
Verkalýðshreyfingin hlýtur að vera farin að hugsa um það að stofna "matvöruverslun alþýðunnar" "alþýðubanka" og "olíufélag alþýðunnar". og nota til þess digra lífeyrissjóði sína.
Verkalýðurinn þarf á umtalsverðri launahækkun að halda til að geta haldið í við okrið og svindlið.
Ljósið í myrkrinu er viðskiptaráðherrann sem ætlar að leggja fram frumvarp um samkeppni og verðlagseftirlit og afnám stimpilgjalda og auka rétt neytenda og gera þeim hærra undir höfði.
Oft var þörf en nú er nauðsyn.
Stöndum saman
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2007 | 01:47
Norðurland vestra
Nú lá leiðin norður á Skagaströnd. Þar hefur sjávarútbegsfyrirtæki á Króknum keypt upp hina öflugu útgerð Skagstrendinga. Fólkið á Skagaströnd er uggandi vegan þess að blikur eru á lofti um að fiskvinnslan verði endanlega flutt á Krókinn. Það er fiskmarkaður á Skagaströnd sem selur mikinn fisk. Kannske geta Skagstrendingar byrjað upp á nýtt og farið að verka þennan fisk. Vonandi tekst þeim að komast út úr aðsteðjandi vanda. og vonandi munu mótvægisaðgerðir koma að notum þegar fram líða stundir. Á Skagaströnd vorum við rukkaðir um störf án staðsetningar og var það ekki að ósekju. Við verðum að spýta í lófana hvað þetta varðar og standa okkur betur.
Frá Skagaströnd var farið í Varmahlíð og gamla félagsheimilið skoðað. Það er í endurbyggingu og kostar mikinn pening að gera við það og endurnýja. Á hótelinu í Varmahlíð var síðan fundur með sveitarstjórnamönnum í gamal Noðurlandi vestra. það var góður fundur og margar brýningar og hvatningar fengum við þingmenn. Verknámsbygging var skoðuð á Króknum og kynning þar. Deginum lauk svo á Hólum í Hjaltadal, þeim helga stað og vorum við við afhendingu styrkja sem úthlutað var vegna mennningarsamningsins. Þetta var langur dagur, sem vonandi skilar sínu í Norðurland vestra.
Stöndum saman
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2007 | 22:17
Vesturland og Vestfirðir.
Í gær vorum við þingmenn Norvesturkjördæmis á ferðinni í Borgarnesi og áttum fund með sveitarstjórnarmönnum Vesturlands. Það var mjög gott að eiga þennan fund og heyra, hvað hvert og eitt sveitarfélag er að leggja áherslu á. Síðan heimsóttum við nýjan menntaskóla í Borgarnesi og þaðan lá leiðin í Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
Í morgun flugum við vestur á firði. Þar skoðuðum fiskvinnsluna á Flateyri sem er nýkomin í gang. Þaðan fórum við í Orkubú Vestfjarða á Ísafirði og fengum þar góða kynningu. Svo fórum við á aðra kynningu í Háskólasetrið. Þá áttum við sams konar fund með sveitarstjórnarmönnum á Vestfjörðum og í Borgarnesi- (Vesturbyggð og Tálknafjörður voru með í gegnum fjarfundarbúnað - kom það vel út).
Greinilegt er að við verðum að fylgja fyrirhuguðum byggðaaðgerum mjög vel eftir og bæta frekar í en hitt.
Ég held að margir hafi ekki gert sér grein fyrir því, að staða byggðamála var orðin mjög alvarleg fyrir niðurskurð þorskveiðiheimildanna og því má spyrja:
"Var niðurskurðu þorskveiðiheimildanna til þess að vekja marga til meðvitundar um bága stöðu margra byggða og með þeim hætti jákvæð aðgerð?"
Fiskverð hefur reyndar farið hækkandi og er það vel - vonandi hækkar það um 30% sem nemur niðurskurðinum. Og ef svo fer þá verður tjónið ekki eins mikið en ef til engrar verhækkunar kæmi.
Að lokum áttum við góðan fund með hestamönnum en þeir missa aðstöðu sína vegna þess að hún fer undir veg sem liggur frá nýjum jarðgöngum.
Á föstudaginn munum við svo eiga fundi á Norðulandi Vestra.
Berjumst fyrir bættri byggð og stöndum saman.
Kalli Matt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2007 | 01:30
Í Kanada
Ég fór á þing Norðurheimskautsráðsins i Kanada um daginn og var það nokkur reynsla.
Mikið var rætt um hlýnun jarðar og þær breytingar sem eiga sér stað á norður hveli jarðar. Nýjar siglingaleiðir eru að opnast og ljóst er að umferð um þetta svæði fer vaxandi. Í telgslum við þetta var rætt um björgunarmál og nauðsyn þess að auka viðbúnað og standa klár á því að hvers konar slys geta hent.
Þá var sagt frá mjög miklum vandamálum sem hrjá frumbyggjaþjóðir á þessum slóðum vegna áfengsdrykkju og aukinnar fíkniefnaneyslu. Sjálfsvíg ungra manna eru þar tíð og ofbeldi mikið. Það var greinlegt að fólkið sem gerði grein fyrir skýrslunni var mjög slegið vegna þessarar stöðu og augljóst er að áfengisneysla er mikill bölvaldur á þessum slóðum. Vonandi tekst að vinna gegn þessari vá og opna augu hinna þjáðu víndýrkenda fyrir því að erfiðleikar lífisins og þrautir verða ekki sigraðar með alkóhóldrykkju eða annarri fíkniefna neyslu.
Förum edrú að sofa og stöndum saman.
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.8.2007 | 01:17
Á Hólum í Hjaltadal hjá Jóni biskupi á Hólahátíð.
12. ágúst er afmælisdagurinn minn. þá varð ég 55 ára.
Árla þessa dags lögðum við hjónin af stað að Hólum í Hjaltadal og var leiðin greið, Komum tímanlega að Hólum þáðum konunglegan rétt hjá heiðurshjónunum Hr. Jóni Hólabiskupi og maddömu Margréti. Síðan var gegnið til messu sem var fallega flutt af sr. Gunnari á Hofsósi, sr. Dölu í Miklabæ og síðan Hólabiskupi. Hallveig Runarsdóttir söng einsöng og var það einstaklega fallegt hjá henni og reyndar sálmasöngurinn allur og organleikur. Þá predikaði fyrrverandi biskup Íslands Ólafur Skúlason og var sú predikun atburður. Guðspjall dagsins segir af því er Jesús grætur yfir Jerúslem sem þekkir ekki vitjunartíma sinn. Þar fléttaði hann snilldarlega saman guðspjallinu við nútíman - tár Jesú - við tárin er falla vegna Darfur og Bagdad og víðar. Og spurði hveð við látum af hendi rakna til að útrýmna hungri og hatri í heiminum. Stemmingin var mögnuð þegar þessi aldni biskup hafði lokið predikun sinni. og svo gengu flestir ef ekki allir að borði Drottins. Já þetta einstaklega magnaður vðburður þessi messi.
Svo kom kirkjukaffið á eftir það var frábært, góaðr kökur, flatbrauðið mjög gott og hangiketið líka.
Næst kom ræða Ingibjargar Sólrúnar og var sú ræða einstaklega góð og kom eins og í beinu framhaldi af orðum guðsþjónustunnar þar sem hún talaði um ábyrgð okkar í samfélagi þjóðanna og þá jákvæðu möguleika sem geta falist í því að við fáum sæti í Öryggisráðinu. Að auki ræddi hún um að grundvöllur blómlegra byggða sé góð og fjölbreytt menntun ásamt góðum samgöngum.
Af þessari ræðu mátti vel merkju hversu það snart Ingibjörgu að fara til landanna fyrir botni Miðjarðarhafs og miðlaði hún af reynslu sinni úr þessari ferð. Ræðan var auk þess full af skýrum og fallegm myndlíkingum og var ljós að flutningi loknum að hún féll í mjög góða jörð.
Hólahátíðarræður hafa oft vakið viðbögð og stunum verið skandall, en þessi Hólaræðia með fullri virðingu er sú besta sem ég hef heyrt eða séð.
Að lokum vorum við sov leyst út með góðri matarveislu hjá Guðrúnu á hólum og manni hennar.
SVo var ekið heimog - ég verð að fara að sofa.
Stöndum saman
góða nótt
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.7.2007 | 01:08
Ef Eiður hefði verið með.
Ef Eiður "minn" hefði verið með er ljóst að Barcelona hefði unnið 3:0.
Stöndum saman
Kalli Matt
![]() |
Henry tryggði Börsungum sigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.7.2007 | 00:38
Ingibjörg Sólrún í Palestínu og Ísrael.
Er ekki allt í lagi með landann?
Hvað er að þó Ingibjörg fari til Palestínu og Ísraels? Er ekki fullkomlega eðlilegt, að eitt fyrsta verk hvers einasta nýs utanríkisráðherra sé að fara á þetta svæði þó ekki væri nema til að segja:
Er ekki einhver von um að þið megið semja um frið?
Stöndum saman
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.7.2007 | 13:35
Dauðsföll, nauðganir og rán
Blaðið í dag fjallar um "þverpólitískan vilja" til lækkunar á áfengisverði.
Þó talað sé við nokkra einstaklinga í forystusveit flokkanna er ekki þar með sagt að um þverpólitískan vilja að ræða.
Í sama blaði á blaðsíðu átta er fjallað um afleiðingar og "árangur" ódýrs áfengis og auðvelds aðgengis að því á sólarströndum og jafnvel víðar.. Já þetta er árangur hjá Dönum og Svíum. Heilbrigðiðyfirvöld allt í kringum okkur æpa vegna alkóhólvæðingar landa sinna og vilja þrengja löggjöfina á sama tíma og við erum að "taka við okkur" í átt til frjálsræðis.
Ég skora á alla til að hugsa þessi mál í botn. Skoðið þessa frétt og fréttir komandi daga um drykkju og dópneyslu. Alkóhól er nægjanlega ódýrt en afleiðingar neyslu þess mjög oft ofboðslega dýrar
Lækkum frekar stimpilgjöld og lántökugjöld.
Stöndum saman.
Kalli Matt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2007 | 12:37
Lækkað vínverð - lækkað dópverð.
Það er að minni hyggju alveg út í hött að lækka verð á áfengi. Áfengi er ekki nein venjuleg vara við vitum það og þess vegna er sérstök löggjöf um áfengi fyrir hendi. Við verðum að byrja á mikilli vinnu í forvarnarstarfi og mikilli annarri vinnu sem lýtur að endurhæfingu alkahólista og annarra fíkla. Ef verð verður lækkað á víni þú mun verð á dópi lækka.
Stöndum saman og verum edrú um helgina.
Kalli Matt
![]() |
Pólitísk samstaða um lækkun áfengisverðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2007 | 12:07
Lækkum EKKI vínverð og aukum EKKI aðgengi að víni.
Ég er algerlega á móti því að lækka verð á áfengi. Drykkja er allt of mikið vandamál í landi okkar og og veldur ómældum þjáningum. Alkóhólismi er alvarlegur sjúkdómur og herjar hann á mjög marga og hefur unnið margt íllt í landi okkar. Og það er líka ljóst að margir aðrir en alkar lenda í vandræðum. Fórnarlömb vínrykkjunar eru allt of mörg. Ef ríkið ætllar að lækka verð á áfengi er það að breyta áfengispólitíkinni. Hátt verð á víni og erfiðara aðgengi dregur úr neyslu en það er æskilegt að alkóhólneysla sé sem minnst. Þó alkóhól sé löglegur vímugjafi þá er það skuggalega mikið eitur bæði hægverkandi og langverkandi.
Í ríkisstjórnarsáttmálanum er sérstaklega tekið fram að ráðist verði gegn fíkniefnavandanum, en áfengisneysla er mikil hluti hans. Ef menn eru að tala um að lækka verð á áfengi í og breyta þannig áfengispólitík í landinu ber þeim rík skylda til að vinna fyrst stórátak á sviði forvarna. Lækkað verð á áfengi mun líka þýða lækkað verð á öðrum fíkniefnum og auka þannig vandann á því sviði líka.
Hér fylgja svo í lokin nokkur orð úr Orðskviðum Salómons.
- 29 Hver æjar? hver veinar? hver á í deilum? hver kvartar? hver fær sár að þarflausu? hver rauð augu?
- 30 Þeir sem sitja við vín fram á nætur, þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum.
- 31Horf þú ekki á vínið, hve rautt það er, hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.
- 32Að síðustu bítur það sem höggormur og spýtir eitri sem naðra.
- 33Augu þín munu sjá kynlega hluti, og hjarta þitt mun mæla fláræði.
- 34Og þú munt vera eins og sá, sem liggur úti í miðju hafi, já, eins og sá, er liggur efst uppi á siglutré.
- 35"Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til, þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var. Hvenær mun ég vakna? Ég vil meira vín!"
Stööndum saman.
Kalli Matt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Júlí 2022
- Nóvember 2020
- Mars 2020
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- Mars 2016
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Ágúst 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Nóvember 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Apríl 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
-
eddaagn
-
bjorkv
-
gudfinnur
-
prakkarinn
-
lara
-
bryndisisfold
-
baldurkr
-
salvor
-
ingibjorgstefans
-
hrannarb
-
hreinsi
-
pallieinars
-
ingo
-
agny
-
arnalara
-
gumson
-
alfheidur
-
reykur
-
arnith2
-
heilbrigd-skynsemi
-
kaffi
-
birnamjoll
-
bjarnihardar
-
bd
-
bjornj
-
blues
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
dagga
-
einarben
-
komediuleikhusid
-
kamilla
-
fanney
-
garpur76
-
gesturgudjonsson
-
gtg
-
gretaulfs
-
gretarmar
-
thjalfi
-
orri
-
gudrunkatrin
-
zeriaph
-
gunnarpetur
-
gbo
-
coke
-
gylfigisla
-
heidistrand
-
helgatho
-
hildurhelgas
-
drum
-
idno
-
tru
-
ingimundur
-
irisarna
-
jakobk
-
enoch
-
joninaros
-
fiski
-
thjodarskutan
-
jonthorolafsson
-
kiddijoi
-
killerjoe
-
kolbrunerin
-
kristbjorggisla
-
krist
-
kristinm
-
kristjanmoller
-
mal214
-
natan24
-
nilli
-
nielsfinsen
-
solir
-
olafursv
-
olafurjonsson
-
kex
-
schmidt
-
runar-karvel
-
sirrycoach
-
siggiholmar
-
siggikaiser
-
siggisig
-
siggith
-
steindorgretar
-
summi
-
sunnadora
-
garibald
-
svavaralfred
-
saethorhelgi
-
tommi
-
tryggvigunnarhansen
-
valdisa
-
vefritid
-
vestfirdir
-
steinibriem
-
steinig
-
thorasig
-
tbs
-
thorhallurheimisson
-
thorha