29.5.2007 | 02:38
Fyrir vestan um hvítasunnu
Ég fór vestur á firði á fimmtudaginn var og kom til baka í dag. Mitt fyrsta verk var að fara til sr. Magnúsar í Ísafjarðarkirkju og bað hann um blessun mér til handa í nýju starfi. Ég fór líka til Flateyrar þar sem allt er nú í óvissu og lausu lofti vegna kvótakerfisins, m.a.. Það er ljóst að mikil verkefni blasa við ef rétta á hag byggðanna fyrir vestan og reyndar víðar um land. Ég mun leggja lóð mín á þær vogarskálar er gefa byggðinni vigt. Það ástand sem nú er, hefur orðið til á nokkuð löngum tíma en engu að síður verður að grípa til skjótra aðgerða. Hugmyndin um að Ísafjarðarbær neyti forkaupsréttar á kvótanum er mjög eðlileg og tel ég að drífa verði í því sem fyrst. Hvort við erum að sjá Bæjarútgerð Ísafjarðarbæjar eða einhvers konar eignarhaldsfélag í uppsiglingu veit ég ekki en ljóst er að kvóta er þörf.
Á hvítasunnudegi naut ég þeirrar ánægju og gleði að fá að ferma fjögur ungmenni í Suðureyrarkirkju. Það gerði ég í stað sr. Valdimars Hreiðarssonar sem fól mér þá þjónustu, þar eð hann varð á þessum degi að vera annars staðar brýnna persónulegra erinda. Er ég honum mjög þakklátur því einmitt á hvítasunnu fyrir 20 árum fermdi ég í fyrsta sinn og það líka í Suðureyrarkirkju. Þessi dagur var einstaklega fallegur og sólríkur og allir voru svo glaðir.
Ég vona að okkur gangi vel að styrkja byggðir og efla, svo að fólk verði þar öruggara um atvinnu sína afkomu og líf.
Stöndum saman.
Kalli Matt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.5.2007 | 09:53
Öryggi manna í fangelsum.
Nú fer fram umræða um öryggismál í fangelsum. Brunamál ber á góma. Til eru klefar í fangelsum landsins sem er lokað með hengilás, og ef einn gangur er svoleiðis á Litla Hrauni segir það sig sjálft að erfitt er fyrir hvaða fangavörð sem er að ganga á röðina og opna hvern lás ef kviknar í.
Og hvernig virkar svoleiðis ef jarðskjálfti ríður yfir?
Menn segja að öryggið sé svo gott að þetta sé allt í lagi. Það er vissulega bót í máli ef menn leitast við að hafa öryggið sem best. En auðvitað er ljóst að allir fangar vildu frekar vera á gagni þar sem hægt er að opna allar hurðar með einu handtaki í stað gangs sem lokað er með hengilásum. Ef ég væri fangi myndi ég vilja það að minnsta kosti sjálfur.
Ég gleðst yfir því að í stjórnarsáttmálanum er sérstaklega getið um fangelsismál og vímuefni. Þau orð fela í sér virðingu fyrir þeim sem hallir hafa farið í lífinu og þarfnast stuðnings. Við verðum að styðja ríkisstjórnina í því að fylgja þessum áformum eftir. En auðvitað meira um þetta síðar.
Stöndum saman
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.5.2007 | 23:26
Ný ríkisstjórn - næg verkefni
Ágæti lesandi.
Ferðlög um kjördæmið kosningaþeysireið og margt annað á þátt í blogghléi mínu en nú koma nokkur orð til að bæta úr því.
Jæja, þá eru kosningarnar afstaðnar og ný ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í þann mund að taka við völdum. Vil ég hér þakka öllum sem kusu Samfylkinguna á Norðvestur kjördæmi og reyndar um allt land. Draumurinn um að Anna Kristín yrði þingmaður rættist ekki og eru það okkur öllum mikil vonbrigði.
Samfylkinginn náði þó því að verða næst stærsti flokkurinn í kjördæminu og tapað innan við tveimur prósentum frá síðustu kosningum en vann auðvitað, ef við horfum til þess þegar útlitið var sem verst í haust. Ég get sagt það hér, að þá varð mér ekki um sel. En það var liðsheildin sem breytti öllu og sameiginleg barátta skilaði okkur Guðbjarti inn á þing. Og nú þar sem við erum komin í stjórn geri ég ráð fyrir því að kallað verði á fleiri úr liðinu til að takast á við mörg verkefni sem við okkur blasa og þátttaka í ríkisstjórn krefur.
Já ég er ánægður með það sem er að gerast - þátttöku okkar í ríkisstjórn.
Auðvitað er stefnuskrá Samfylkingarinnar ekki málefnasamningurinn, en engu að síður hljótum við að vera sátt við það að málefnasamningurinn ber þess skýr merki að jafnaðarflokkur á góðan hlut í honum.
Að vera í stjórnarliðinu gefur okkur aukin tækifæri að hafa áhrif til góðs fyrir land og þjóð og taka á mörgum brýnum verkefnum.
Ég óska þeim Ingibjörgu, Össuri, Kristjáni, Jóhönnu, Björgvin, og Þórunni innilega til hamingju með störfin og trúi því að þau verði góðir málsvarar janfaðarstefnunnar á þessum nýja vettvangi. Þá óska ég ráðherrum Sjálfstæðisflokksins velfarnaðar í störfum sínum og óska Guðlaugi líka til hamingju með ráðherratitilinn og vona líka að honum vegni vel í störfum sínum.
Það sem er mér nú efst í huga er staðan í byggðinni vestur á fjörðum, en byggðamálin þar eru æpandi verkefni fyrir nýja ríkisstjórn. Varnalegar lausnir verðum við að finna á þeim vanda sem skapaðist við það að kvótinn er seldur burt.
Stöndum saman
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.4.2007 | 00:19
Borgarnesfundur - baráttan um að Anna haldi þingsæti sínu.
Við opnuðum kosningaskrifstofnuna okkar í Borgarnesi í kvöld. það var frábært hve margir komu og áttum við góðan baráttufund. Ég veit ekki nákvæmlega hve margir voru mættir en einhver sagði mér að um 65 til 70 manns hefði komið. Ingibjörg Sólrún hélt ræðu kvöldsins þá sungu Silfurrefirnir nokkur lög við undirleik Steinunnar stjórnanda hópsins. Síðan flutti Össur hvatningarræðu og á eftir honum talaði Anna Kristín Gunnarsdóttir. Óvænta og ánægjulega gesti hafði líka borðið að garði. Það voru þeir Gunnar Svavarsson og Árni Páll Árnason úr kraganum og töluðu þeir líka og brýndu fundarmenn til dáða. Hólmfríður Sveinsdóttir formaður Samfylkingarinnar í Borgarnesi stjórnaði þessu öllu með stakri prýði. en undirritaður sleit fundi og benti á að ekki sé langt í það að við náum þriðja manni með þessu áframhaldi.
Já, nú er það orðin raunhæfur möguleiki að Anna Kristín Gunnarsdóttir haldi sæti sínu á Alþingi, en til þess verðum við samt að leggjast vel á árarnar og kjósa Samfylkinguna.
Já stöndum saman
X - S
Kalli Matt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.4.2007 | 13:18
Öll erum við hjartanlega velkomin- sérstaklega þú
Kosningaskrifstofa Samfylkingarinnar verður opnuð í Borgarnesi í kvöld. Við ætlum að hafa heitt á könnunni og kannski gott betur. Ætlunin er að opna fleiri kosningaskrifstofur á næstu dögum. Það er oft gaman að kíkja á kosningaskrifstofurnar til að spjalla um daginn og veginn og ræða um hin og þessi málefni sem lúta að pólitíkinni. Öll erum við hjartanlega velkomin og sérstaklega þú sem lest þessar línur.
Kosningaskrifstofan sem hér um ræðir er í Félagsbæ og opnar klukkan 20.00. Anna Gutti og Kalli (ég) mætum og að sjálfsögðu þau Ingibjörg og Össur og margt fleira stórmenni svo sem þú.
Vertu með því vorið kallar á þig.
X - S
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.4.2007 | 10:18
Heimur batnandi fer - forystugrein Fréttablaðsins.
Til að skilja eftirfarandi texta til fulls verð menn að lesa forystugein fréttablaðsins í dag.
Forystugrein fréttablaðsins í dag er nokkurs konar iðrunarpistill. Þar kemur fram í "játningum" Jóns Kaldals að fjölmiðlafólk beri töluverða sök á því að "jákvæðar hliðar á okkar samfélagi þurfi að koma á óvart" Um þetta skal ekki fjallað ítarlega en gleðilegt er að maður sem stendur svo framarlega í "fjölmiðlaheiminum" skuli gera sér grein fyrir því að matreiðsla fjölmiðlamanna skuli skipta máli og geti haft áhrfi á umræðuna í samfélaginu og um leið ýmsa framvidnu þess.
Það skiptir máli við hverja er talað um hvað og svo framvegis. Nú hellast yfir okkur endalausar myndir af manni sem geinilega var alvarlega veikur á geði sínu og framdi fjöldamorð í Virginíu í Bandríkjunum. Langar og ítarlegar fréttir um málið bíast yfir okkur. Í hvað skyni? og svona má lengi telja.
það sem mér finnst þó mikilvægast í máliu er að "fréttaneytendur" geri sér grein fyrir því að "fréttahaukurinn" höfundurinn er litaður af eigin reynslu og lífi.
Hugsum okkar til dæmis "gamlan" heimdelling eða stúlku eða dreng sem alist hafa upp á gegnsýrðu sjálfstæðisheimili eða gamlan fylkingarkomma eða stúlku eða dreng sem alist hafa upp á gegnsýrðu kommaheimili og fá vinnu við að koma fréttum á framfæri - fara í fréttamennsku. verða þau hlutlaus eða skiptir bakgrunnurinn hér máli?
Er fréttastjóri eða ritistjóri sem hefur verið formaður stjórnmálaflokks "hreinn" fréttamaður og hlutlaus? Svona getum við endalaust velt þessum hlutum fyrir okkur en mikilvægast er að við gerum okkur grein fyrir því að hverjum manni er nauðsynlegt að hafa gagnrýna hugsun og kokgleypa ekki allt fyrir heilagan sannleika sem sagt er í fjölmiðlum.
Ég á tvö börn í grunnskóla 10 ára og 12 ára og gleðst innilega yfir því að fíkniefnaváin í grunnskólum fari minnkandi (vonandi er könnunin hlutlaus (hver greiðir fyrir hana?)). En um leið spyr ég mig: "Hvernig stendur á því í þessum batnandi heimi að fangelsi landsins eru orðin svo full að þau geta ekki tekið við fólki sem kemur þangað til afplánunar? og að biðlistar á meðferðarstofnarnir fari síst minnkandi þrátt fyrir svona jákævðar niðurstöður grunnskólarannsóknarinnar? Og að lokum: Hver var tilgangur ritunar þessarar Pollýönsku forystugreinar?
X - S
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2007 | 02:33
Á ferð um Norðvesturkjördæmi
Síðustu daga vorum við Jóhann Ársælsson alþingismaður á ferð um Norðvesturkjördæmi (Norðurland vestra) það er greinilegt, að fólk í kjördæminu hefur fylgst með landsfundi okkar Samfylkingarmanna og leggja flestir honum gott orð. Fundurinn tókst líka mjög vel að mínu áliti og var mikil stemmning á honum. Enda er ég viss um að landið fer að rísa hjá okkur Samfylkingarfólki.
Á ferð okkar Jóhanns um kjördæmið vorum við oft spurðir að því hvað Samfylkingin ætli að gera til að efla og treysta byggðina. Við vísum auðvitað til stefnu okkar um jöfnuð milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis - að við viljum að allir landsmenn njóti góðra samgangna, nettenginga, símasambands og búi við sömu gæði hvað þetta varðar. Sérstaklega teljum við að leggja þurfi aukna áherslu á samgöngurnar.
Við bendum líka á áherslur okkar á störf án staðsetningar og auðvitað að opna verður fiskveiðkerfið svo nýliðun geti orðið auðveldari. Það er líka umhugsunarefni hvernig fólk á að geta hafið búskap við þær aðstæður sem nú eru í landbúnaðinum. Vissulega ber okkur að gæta landbúnaðar okkar, en hann verður að vera opin fyrir jákævðum breytingum.
það er líka mikið byggðamál að börn okkar geti búið heima hjá sér til 18 ára aldurs og geti stundað nám að mestu leyti í heimabyggð sinni en þurfi ekki að fara að heiman strax eftri grunnskólapróf.
Hvar sem við komum barst talið líka að málefnum ungling og þeirri vá sem að mörgum þeirra steðjar. Öllum ber saman um að gera verður í stórátak á þessu sviði og í því sambandi bentum við á samþykkt landsfundarins um vímuvarnamál og stefnu Samfylkingarinnar á þessu sviði.
Ekki skal því haldið fram að ríkisstjórnin sem nú hefur stjórnað í 12 ár hafi ekki gert neitt gott - skárra væri það nú - en við bendum á að nú verður tími nýrra áherslna að renna upp. það eru áherslur á hin mannlegu gildi og byggðamálin.
það er ekki mánuður til kosninga og mér finnst sem viljayfirlýsingar, undirskriftir og skóflustungur ráðherrana síðustu daga beri keim af ótta við dóm kjósenda. það er í rauninni ótrúverðugt, enda ekki í litlu samræmi við gerðir þeirra síðustu árin. Breytum nú til og gefum öðrum tækifæri í kosningunm - munum það, að enginn sér til okkar í kjörklefanum. þar erum við frjáls.
Breytum rétt og kjósum Samfylkinguna.
X - S
Kalli Matt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2007 | 09:04
Óhóflegt ofbeldi.
Er eittvað til sem heitir hóflegt ofbeldi?
Kalli Matt
![]() |
Bandarískir landgönguliðar beittu óhóflegu ofbeldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.4.2007 | 00:21
Landsfundurinn í Egilshöll og frábær ræða Ingibjargar
Dagurin er að kveldi kominn og ég er mjög ánægður. Byrjaði á fundinum kl 13.00 að stýra ásamt Ástu Ragnheiði hópi 3 um málefni aldraðra og heilbrigðisþjónustuna. það var ánægjulegt. Við erum líka með ákveðna sérályktun um áfengis-og fíkniefnamál og vona é gað hún fái jákvæða afgreiðslu.
Ég sá ekki alveg fréttirnar af fundinum en hvert sæti var setið og var þarna mjög mikill fjöldi fólks sem sýndi samhug og einingu. Ræða Ingibjargar var frábær - í anda janaðarstefnunnnar það sést alltaf betur og betur hversu afgerandi og góður leiðtogi hún er. Ég óska henni til hamingju. ég trúi ekki öðru en að fylgið okkar Saamfylkingarmanna fari nú að koma og að við jafnaðarmenn göngum sátt frá borði eftir kosningar í vor. En svona er þetta líf. Verum bara hress og berjumst áfram til þess 12. maí n.k.
Já stöndum saman x - s
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.4.2007 | 23:13
Kristur er upprisinn - kristur er sannarlega upprisinn.
Nú er páskadagur að kveldi kominn. Pákskarnir eru stærsta hátíðin í mínum huga. Þá sté Jesús út úr gröfinni og sigraði dauðann. Sú staðreynd gefur okkur öllum von.
Það fólk sem eru svo barnalegt að trúa þessu er í góðum málum. Það var svo gott að vakna í morgun og geta sagt við fólkið sitt: Kristur er upprisinn - gleðilega páska.
Já lífið hefur tilgang og allir kristnir menn hafa þann tilgang að hlýða Jesú Kristi fara eftir orði hans um að elska Guð og náungann. Mér fannst biskupinn góður í morgun. Það væri betra ef við hlustuðum með meiri athygli á menn eins og hann og tækjum í alvöru mark á oðrum þeirra.
Þetta á alla vega við um mig.
Kalli Matt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eldri færslur
- Júlí 2022
- Nóvember 2020
- Mars 2020
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Janúar 2019
- Nóvember 2018
- Mars 2016
- Október 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Ágúst 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Nóvember 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Apríl 2013
- September 2012
- Mars 2012
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Apríl 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
-
eddaagn
-
bjorkv
-
gudfinnur
-
prakkarinn
-
lara
-
bryndisisfold
-
baldurkr
-
salvor
-
ingibjorgstefans
-
hrannarb
-
hreinsi
-
pallieinars
-
ingo
-
agny
-
arnalara
-
gumson
-
alfheidur
-
reykur
-
arnith2
-
heilbrigd-skynsemi
-
kaffi
-
birnamjoll
-
bjarnihardar
-
bd
-
bjornj
-
blues
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
dagga
-
einarben
-
komediuleikhusid
-
kamilla
-
fanney
-
garpur76
-
gesturgudjonsson
-
gtg
-
gretaulfs
-
gretarmar
-
thjalfi
-
orri
-
gudrunkatrin
-
zeriaph
-
gunnarpetur
-
gbo
-
coke
-
gylfigisla
-
heidistrand
-
helgatho
-
hildurhelgas
-
drum
-
idno
-
tru
-
ingimundur
-
irisarna
-
jakobk
-
enoch
-
joninaros
-
fiski
-
thjodarskutan
-
jonthorolafsson
-
kiddijoi
-
killerjoe
-
kolbrunerin
-
kristbjorggisla
-
krist
-
kristinm
-
kristjanmoller
-
mal214
-
natan24
-
nilli
-
nielsfinsen
-
solir
-
olafursv
-
olafurjonsson
-
kex
-
schmidt
-
runar-karvel
-
sirrycoach
-
siggiholmar
-
siggikaiser
-
siggisig
-
siggith
-
steindorgretar
-
summi
-
sunnadora
-
garibald
-
svavaralfred
-
saethorhelgi
-
tommi
-
tryggvigunnarhansen
-
valdisa
-
vefritid
-
vestfirdir
-
steinibriem
-
steinig
-
thorasig
-
tbs
-
thorhallurheimisson
-
thorha